Átta byggðarlög hafa fengið byggðakvóta sinn skertan og er samanlögð skerðing milli fiskveiðiára 179 tonn eða 22,4 tonn að meðaltali. Eitt byggðarlag, Patreksfjörður, missir alfarið sinn byggðakvóta sem nam 15 tonnum á síðasta ári.
Þrjú byggðarlög, Tálknafjörður, Flateyri og Djúpivogur, fá 300 tonna hámarksúthlutun og sextán byggðarlög fá 15 tonna lágmarksúthlutun.
Alls er úthlutað 4.623 þorskígildistonnum vegna fiskveiðiársins 2021/2022 og er þeim dreift meðal 50 byggðarlaga í 29 sveitarfélögum, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir að skerðing í úthlutuðum byggðakvóta til átta byggðarlaga hafi komið til vegna „samdráttar í heildarúthlutun milli ára“. En 5,3% af aflamarki hvers fiskveiðiárs er úthlutað í gegnum atvinnu- og byggðakvótakerfið.
Þá byggist úthlutunin á reglugerð um úthlutun byggðakvóta og „upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2011/2012 til fiskveiðiársins 2021/2022“, að því er segir í tilkynningunni.
Vakin er athygli á því að byggðarlög með færri en 400 íbúa fá 3.219 þorskígildistonn í sinn hlut en byggðarlög með fleiri en 400 íbúa fá 1.404 þorskígildistonnum úthlutuð.
Rétt rúmum 39% er úthlutað til byggðarlaga á Vestfjörðum eða 1.812 tonnum sem er mest allra landshluta.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.7.24 | 399,16 kr/kg |
Þorskur, slægður | 16.7.24 | 406,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 16.7.24 | 367,05 kr/kg |
Ýsa, slægð | 16.7.24 | 309,23 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 16.7.24 | 151,84 kr/kg |
Ufsi, slægður | 16.7.24 | 164,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 16.7.24 | 349,26 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
16.7.24 Ásbjörn RE 51 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 798 kg |
Samtals | 798 kg |
16.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 701 kg |
Karfi | 63 kg |
Ufsi | 10 kg |
Samtals | 774 kg |
16.7.24 Bára HF 78 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 799 kg |
Samtals | 799 kg |
16.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 289 kg |
Ufsi | 2 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 293 kg |
16.7.24 Örnólfur AK 63 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 444 kg |
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 456 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.7.24 | 399,16 kr/kg |
Þorskur, slægður | 16.7.24 | 406,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 16.7.24 | 367,05 kr/kg |
Ýsa, slægð | 16.7.24 | 309,23 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 16.7.24 | 151,84 kr/kg |
Ufsi, slægður | 16.7.24 | 164,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 16.7.24 | 349,26 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
16.7.24 Ásbjörn RE 51 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 798 kg |
Samtals | 798 kg |
16.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 701 kg |
Karfi | 63 kg |
Ufsi | 10 kg |
Samtals | 774 kg |
16.7.24 Bára HF 78 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 799 kg |
Samtals | 799 kg |
16.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 289 kg |
Ufsi | 2 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 293 kg |
16.7.24 Örnólfur AK 63 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 444 kg |
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 456 kg |