Skip Samherja og ÚA með 11,7 milljarða afla

Björg EA 1, Björgúlfur EA 312 og Kaldbakur EA 1 …
Björg EA 1, Björgúlfur EA 312 og Kaldbakur EA 1 komu ásamt öðrum skipum Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa með afla fyrir 11,7 milljarða króna í fyrra. Skapti Hallgrímsson

Samanlagt verðmæti afla sem skip Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa kom með að landi á síðasta ári nam 11,7 milljörðum. Alls veiddu bolfiskskip félaganna 34,3 þúsund tonn og var verðmæti aflans 9,3 milljarðar en afli nýs uppsjávarskips Samherja, Vilhelms Þorsteinnssonar EA, nam 42,5 þúsund tonnum að verðmæti 2,4 milljarða króna.

Þetta kemur fram á vef Samherja.

Þar er haft eftir Kristjáni Vilhelmssyni, framkvæmdastjóra útgerðarsviðs Samherja, að veiðar hafi gengið vel árið 2021 en einnig hafi verið áskoranir. „Við þurftum á ýmsan hátt að hafa meira fyrir veiðunum á síðasta ári vegna óveðurs, sérstaklega í haust og vetur. Heilt yfir gengu veiðarnar þó vel, enda valinn maður í hverju rúmi og skipaflotinn góður og vel búinn. Þegar verið er að gera upp aflatölur er ekki síður mikilvægt að líta á verðmætið,“ segir hann.

Vilhelm Þorsteinsson EA var aflamesta skip Samherja á síðasta ári …
Vilhelm Þorsteinsson EA var aflamesta skip Samherja á síðasta ári og kom til hafnar með 42,5 þúsund tonn. Ljósmynd/Samherji/Þórhallur Jónsson

Björgúlfur með mesta afla bolfiskskipanna

  • Afli Björgúlfs EA nam 7.536 tonnum að verðmæti 2,1 milljarð króna.
  • Afli Kaldbaks EA var 7.264 tonn og verðmætið tæpir tveir milljarðar króna.
  • Afli Björgvins EA var á nýliðnu ári 6.461 tonn og verðmætið 1,7 milljarðar króna.
  • Afli Harðbaks EA var 5.890 tonn og verðmætið 1,5 milljarðar króna.
  • Afli Bjargar EA var 6.186 tonn og verðmætið 1,7 milljarðar króna.
  • Þá veiddu Oddeyrin og BErgur samtals 1.010 tonn og nam verðmæti þess 349 milljónum króna.

Sundurliðað eftir tegundum var mest veitt af þorski. Alls voru veidd 22,2 þúsund tonn af þorski, 3,8 þúsund tonn af gullkarfa, 3,3 þúsund tonn af ýsu og 3,2 þúsund tonn af ufsa.

Björgúlfur EA var aflamesta bolfiskskip félaganna.
Björgúlfur EA var aflamesta bolfiskskip félaganna. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 640,70 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 392,97 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,20 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 647,96 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Öðlingur SU 191 Handfæri
Þorskur 4.237 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 4.242 kg
24.7.24 Kristín ÓF 49 Handfæri
Þorskur 820 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 835 kg
24.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 2.308 kg
Samtals 2.308 kg
24.7.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.037 kg
Þorskur 617 kg
Skarkoli 132 kg
Steinbítur 78 kg
Langa 24 kg
Samtals 4.888 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 640,70 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 392,97 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,20 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 647,96 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Öðlingur SU 191 Handfæri
Þorskur 4.237 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 4.242 kg
24.7.24 Kristín ÓF 49 Handfæri
Þorskur 820 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 835 kg
24.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 2.308 kg
Samtals 2.308 kg
24.7.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.037 kg
Þorskur 617 kg
Skarkoli 132 kg
Steinbítur 78 kg
Langa 24 kg
Samtals 4.888 kg

Skoða allar landanir »