„Ég hef reyndar aldrei heyrt um stærri loðnufarm“

Verksmiðjustjórarnir Eggert Ólafur Einarsson (efst) og Hafþór Eiríksson (neðst) segjast …
Verksmiðjustjórarnir Eggert Ólafur Einarsson (efst) og Hafþór Eiríksson (neðst) segjast ekki muna eftir að landað hafi verið jafn stórum loðnufarmi eins og úr Berki NK í gær. Ljósmynd/Samsett

„Við lönduðum rétt tæpum 3.211 tonnum af loðnu úr Berki í gær. Þetta er stærsti loðnufarmur sem hingað hefur borist og ég hef reyndar aldrei heyrt um stærri loðnufarm,“ segir Eggert Ólafur Einarsson, verksmiðjustjóra í fiskismjölverksmiðju Síldarvinnslunnar á Seyðirfirði, í færslu á vef útgerðarinnar. 

„Beitir hefur nokkrum sinnum landað hér yfir þrjú þúsund tonna förmum en það hefur ávallt verið kolmunni. Það gekk vel að landa í gær og vinnslan gengur ágætlega en auðvitað vill maður alltaf að þetta gangi örlítið betur en það gerir,“ segir Eggert.

Stærsti farmur sögunnar

Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóri í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, kveðst heldur ekki muna til þess að landað hafi verið slíku magni. „Ég hef aldrei heyrt um stærri loðnufarm. Samkvæmt Fiskistofu landaði Beitir hjá okkur 3.117 tonnum í byrjun mars 2017 og þá var því haldið fram að um heimsmet væri að ræða. Síðan hefur Beitir einu sinni landað kolmunnafarmi sem var 3.220 tonn. Það kæmi mér ekki á óvart ef þetta væri stærsti loðnufarmur sögunnar,“ segir Hafþór. 

Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Neskaupstaðar í dag með 2.045 tonn og er gert ráð fyrir að hluti aflans fari til manneldisvinnslu. Til þessa hefur öll loðna sem borist hefur til Síldarvinnslunnar á vertíðinni farið til framleiðslu á mjöli og lýsi, að því er segir í færslunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 640,70 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 392,97 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,20 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 647,96 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Öðlingur SU 191 Handfæri
Þorskur 4.237 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 4.242 kg
24.7.24 Kristín ÓF 49 Handfæri
Þorskur 820 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 835 kg
24.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 2.308 kg
Samtals 2.308 kg
24.7.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.037 kg
Þorskur 617 kg
Skarkoli 132 kg
Steinbítur 78 kg
Langa 24 kg
Samtals 4.888 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 640,70 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 392,97 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,20 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 647,96 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Öðlingur SU 191 Handfæri
Þorskur 4.237 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 4.242 kg
24.7.24 Kristín ÓF 49 Handfæri
Þorskur 820 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 835 kg
24.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 2.308 kg
Samtals 2.308 kg
24.7.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.037 kg
Þorskur 617 kg
Skarkoli 132 kg
Steinbítur 78 kg
Langa 24 kg
Samtals 4.888 kg

Skoða allar landanir »