Hefja átak gegn slysum á sjó

Fyrsta veggspjaldið var kynnt í gær. Gefið verður nýtt út …
Fyrsta veggspjaldið var kynnt í gær. Gefið verður nýtt út í hverjum mánuði út árið. Mynd/Samgöngustofa

Samgöngustofa, í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg og fjölda aðila í sjávarútvegi, vinnur að útgáfu tólf rafrænna veggspjalda sem hlotið hafa nafnið „12 hnútar“. Fyrsta spjaldið var gefið út í gær og síðan eitt í hverjum mánuði þar eftir fram að lokum árs.

„Tilgangur þessa verkefnis er að fjalla um og undirstrika ýmsa þá mannlegu þætti sem oft leiða til slysa á sjó. Stórlega hefur dregið úr alvarlegum slysum á sjó og þykir nú orðið tíðindum sæta ef banaslys verður. Hins vegar eiga sér enn stað atvik sem leitt geta til alvarlegra slysa. Oft eru þetta afleiðingar tiltekinna viðhorfa, afstöðu, úreltra venja og ýmiss annars í mannlegri hegðun sem aukið geta líkurnar á slysum,“ segir í tölvupósti Einars Magnúsar Magnússonar, sérfræðings á öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu, til blaðamanns.

„Með 12 hnútum viljum við uppræta þessi atriði en á spjöldunum er getið um fyrirbyggjandi aðgerðir sem við vonum að sjómenn tileinki sér,“ skrifar hann.

Einar Magnús segir verkefnið unnið í samstarfi við fjölda aðila og að enn sé að bætast við þann hóp. Handrit og gerð spjaldanna var unnið í samvinnu við Slysavarnaskóla sjómanna.

Vilja fleiri með sér í lið

Þeir sem þegar hafa lagt nafn sitt við verkefnið eru: Brim hf., Félag skipstjórnarmanna, FISK Seafood, Hafnasamband Íslands, Landhelgisgæslan, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samtök aðila í ferðaþjónustu, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Sjómannasamband Íslands, VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna, Vinnslustöðin hf., Visir hf. og Þorbjörn hf.

Að lokum hvetur Einar Magnús fyrirtæki, stofnanir og félög sem tengjast sjávarútvegi og hafa áhuga á að leggja nafn fyrirtækis síns eða samtaka við útgáfuna að hafa samband við Samgöngustofu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »