Bjóða 200 milljarða í eiganda Arctic Fish

Laxeldi MOWI í Beitveitnes í Noregi. Mowi er stærsta laxeldisfyrirtæki …
Laxeldi MOWI í Beitveitnes í Noregi. Mowi er stærsta laxeldisfyrirtæki í heimi og hefur boðið tæplega 200 milljarða króna í allt hlutafé í NTS eigenda Arctic Fish. Ljósmynd/MOWI

Mowi, stærsta laxeldisfyrirtæki í heimi, hefur í dag lagt fram tilboð um kaup á öllu hlutafé í norska félaginu NTS fyrir alls 13,8 milljarða norskra króna, jafnvirði 198,5 milljarða íslenskra króna.

NTS hefur að undanförnu komið upp sjöttu stærstu laxeldissamsteypu heimsins undir merkjum Norwegian Royal Salmon sem er meðal annars eigandi Arctic Fish á Vestfjörðum.

Að undanförnu hafa ríkt miklar deilur milli hluthafa innan NTS. Hópur hluthafa félagsins hafa viljað taka NTS yfir og eru sagðir hafa gert uppreisn á hluthafafundi á föstudag, en Hans Martin Storo, sem varð nýr stjórnarformaður á fundinum, sagði sig frá uppreisninni og greiddi atkvæði gegn yfirtökutilboði hópsins.

Í dag kemur síðan tilboð frá Mowi í allt hlutafé NTS fyrir 13,8 milljarða norskra króna og er áætlunin að greiða helming af kaupverðinu með nýju hlutafé í Mowi og helming með peningum, að því er fram kom í tilkynningu félagsins til norsku kauphallarinnar.

Intrafish hefur eftir Ivan Vindheim, forstjóra Mowi, að meirihluti hluthafa NTS hafi óskað eftir tilboði frá Mowi. Þó vill hann ekki greina frá því hverjir það eru sem báðu um tilboðið.

„Þetta er vinaleg tilfærsla innan greinarinnar af hálfu Mowi,“ er haft eftir Vindheim. „Við vonum að það geti skipt máli fyrir hluthafa og starfsmenn. NTS fellur mjög vel að Mowi stefnulega séð. Við viljum þróa fyrirtækið saman.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »