„Aflétta ætti fjöldatakmörkunum“

Norskir útgerðarmenn krefjast þess að takmarkanir á fjölda norskra skipa …
Norskir útgerðarmenn krefjast þess að takmarkanir á fjölda norskra skipa á loðnuveiðum í íslenskri lögsögu verði aflétt eða að minnsta kosti rýmkuð. mbl.is/Albert Kemp

Norsku loðnuskipunum gekk erfiðlega að ná loðnunni framanaf á vertíðinni og biðla nú til norskra yfirvalda að beita sér fyrir því að fleiri norsk skip fái heimild til að sækja loðnu í íslenskri lögsögu. Þetta kemur fram í bréfi sem samtök norskra útgerðarmanna, Fiskebåt, sendu norska atvinnu- og sjávarútvegsráðuneytisins í dag.

Alls mega vera 30 norsk skip að veiðum samkvæmt gildandi samningum og er í bréfinu vísað til þess að norsku skipunum hafi aðeins tekist að ná sex til sjö þúsund tonnum af þeim 145 þúsund tonnum sem norskum skipum er úthlutað á vertíðinni.

„Núna er norski flotinn að leita að loðnu í veiðanlegu magni norður fyrir 64,30° en íslenski fiskiskipaflotinn heldur togveiðum sínum áfram norðar. Fiskibåt hefur áhyggjur af því að norski fiskiskipaflotinn nái ekki að veiða kvótann. Án framlengingar er veiðitímabilinu lokið 22. febrúar.

Mat Fiskebåt á stöðunni er að brýnt sé að fjölga skipum sem stunda veiðar til að hafa sem mesta afkastagetu þegar veður og aflaskilyrði krefjast þess. Fjölgun norskra skipa sem mun ekki vera í vegi fyrir veiði íslenska fiskiskipaflotans. Aflétta ætti fjöldatakmörkunum á 30 norskum skipum eða hækka,“ segir í bréfinu.

Íslendingar taki ekki tillit til sjónarmiða

Þá er ítrekuð ábending samtakanna um að norskum skipum er aðeins heimilt að styðjast við nót við veiðarnar á meðan Íslendingar, Færeyingar og Grænlendingar fá að nota troll.

Þann 18. janúar leituðu samtökin til norskra yfirvalda vegna þessa.

„Okkur er kunnugt um að ráðuneytið fylgdi fyrirspurninni eftir með samtali við íslensk yfirvöld án þess að tekið hafi verið tillit til sjónarmiða Norðmanna,“ segir í bréfinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.8.24 419,53 kr/kg
Þorskur, slægður 30.8.24 447,03 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.8.24 185,53 kr/kg
Ýsa, slægð 30.8.24 174,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.8.24 196,82 kr/kg
Ufsi, slægður 30.8.24 176,79 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 30.8.24 298,80 kr/kg
Litli karfi 28.8.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 29.8.24 152,55 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.8.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 524 kg
Steinbítur 143 kg
Ýsa 107 kg
Hlýri 87 kg
Ufsi 24 kg
Keila 19 kg
Karfi 16 kg
Langa 8 kg
Samtals 928 kg
31.8.24 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt
Ýsa 428 kg
Þorskur 378 kg
Steinbítur 117 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 927 kg
31.8.24 Indriði Kristins BA 751 Lína
Steinbítur 724 kg
Langa 490 kg
Þorskur 37 kg
Ýsa 33 kg
Skarkoli 11 kg
Karfi 3 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.301 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.8.24 419,53 kr/kg
Þorskur, slægður 30.8.24 447,03 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.8.24 185,53 kr/kg
Ýsa, slægð 30.8.24 174,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.8.24 196,82 kr/kg
Ufsi, slægður 30.8.24 176,79 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 30.8.24 298,80 kr/kg
Litli karfi 28.8.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 29.8.24 152,55 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.8.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 524 kg
Steinbítur 143 kg
Ýsa 107 kg
Hlýri 87 kg
Ufsi 24 kg
Keila 19 kg
Karfi 16 kg
Langa 8 kg
Samtals 928 kg
31.8.24 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt
Ýsa 428 kg
Þorskur 378 kg
Steinbítur 117 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 927 kg
31.8.24 Indriði Kristins BA 751 Lína
Steinbítur 724 kg
Langa 490 kg
Þorskur 37 kg
Ýsa 33 kg
Skarkoli 11 kg
Karfi 3 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.301 kg

Skoða allar landanir »