Vilhelm Þorsteinsson talinn hafa sett heimsmet

Vilhelm Þorsteinsson EA við bryggju í Fuglafirði. Þangað kom skipið …
Vilhelm Þorsteinsson EA við bryggju í Fuglafirði. Þangað kom skipið með 3.448 tonn af loðnu. Ljósmynd/Samherji

Íslandsmetið í löndun stærsta loðnufarms íslenskra skipa er fallið. Tókst Vilhelmi Þorsteinssyni EA, uppsjávarskipi Samherja, hefur gengið vel á vertíðinni og kom til hafnar í Fuglafirði í Færeyjum með 3.448 tonn og er talið að um sé að ræða heimsmet.

Á laugardag hafði Börkur NK, sem Síldarvinnslan gerir út, sett nýtt met þegar skipið landaði 3.409 tonnum á Seyðisfirði. Sló þetta síðasta metið sem Börkur hafði sett frá 12. janúar þegar skipið kom til Seyðisfjarðar með 3.211 tonn.

Hafa ekki undan

Fram kemur í færslu á vef Samherja að það hafi tekið um tuttugu klukkustundir að dæla aflanum úr Vilhelmi Þorsteinssyni í Fuglafirði og var honum dælt beint til vinnslu en ekki í tanka eins og tíðkast á Íslandi

Haft er eftir Guðmundi Þ. Jónssyni, skipstjóra á Vilhelmi Þorsteinssyni, að það hafi verið nauðsynlegt að landa í Færeyjum. „Staðan er einfaldlega sú að bræðslurnar á Íslandi hafa ekki undan þegar vel veiðist og þess vegna var stefnan tekin á Færeyjar, siglingin er hátt í þrjú hundruð sjómílur frá miðunum austur af Langanesi.“

Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri í brúnni á Vilhelmi Þorsteinssyni EA.
Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri í brúnni á Vilhelmi Þorsteinssyni EA. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson

Hann segir tekist hafi að fylla skipið í sjö holum og að stærsta holið hafi verið 600 tonn. „Þá drógum við aðeins í eina og hálfa klukkustund. Annars vorum við oftast að draga í sex til átta klukkustundir, þannig að þetta gekk allt saman mjög vel, að vísu þurftum við að lóna í um hálfan sólarhring vegna brælu.“

Skipið reynst vel

„Nei við erum nú ekkert sérstaklega að keppa á þessum systurskipum um Íslandsmetin, þetta eru einfaldlega mjög góð og öflug skip með mikla burðargetu. Það skiptir mestu að koma með gott hráefni að landi og þessi skip eru vel búin á allan hátt. Þannig var meðalhitinn á hráefninu 2,1 gráða þegar því var dælt til verksmiðjunnar,“ segir Guðmundur.

„Við leystum landfestar í Fuglafirði á sjöunda tímanum í morgun og nú er bara að sigla á miðin. Veiðin hefur verið góð undanfarna daga og verður vonandi svo áfram. Það verður væntanlega nokkuð þröngt á miðunum, því norski flotinn er mættur á svæðið. Þetta nýja skip hefur reynst afar vel og það var ánægjulegt að sigla í land með fullfermi. Við hugsum á svipuðum nótum og landsliðið í handbolta, fókusinn er á næsta túr.“

Skipstjórinn kveðst vera með hörku stráka um borð.
Skipstjórinn kveðst vera með hörku stráka um borð. Ljósmynd/Samherji
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 640,70 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 392,97 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,20 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 647,96 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Öðlingur SU 191 Handfæri
Þorskur 4.237 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 4.242 kg
24.7.24 Kristín ÓF 49 Handfæri
Þorskur 820 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 835 kg
24.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 2.308 kg
Samtals 2.308 kg
24.7.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.037 kg
Þorskur 617 kg
Skarkoli 132 kg
Steinbítur 78 kg
Langa 24 kg
Samtals 4.888 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.7.24 640,70 kr/kg
Þorskur, slægður 24.7.24 539,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.7.24 392,97 kr/kg
Ýsa, slægð 24.7.24 292,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.7.24 203,20 kr/kg
Ufsi, slægður 24.7.24 286,75 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 24.7.24 647,96 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Öðlingur SU 191 Handfæri
Þorskur 4.237 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 4.242 kg
24.7.24 Kristín ÓF 49 Handfæri
Þorskur 820 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 835 kg
24.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 2.308 kg
Samtals 2.308 kg
24.7.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.037 kg
Þorskur 617 kg
Skarkoli 132 kg
Steinbítur 78 kg
Langa 24 kg
Samtals 4.888 kg

Skoða allar landanir »