Bátur sökk við Hafnarfjarðarhöfn

Báturinn sökk um þrjúleytið í dag.
Báturinn sökk um þrjúleytið í dag. Ljósmynd/Guðlaugur Jónasson

Strandveiðibátur sökk við Hafnarfjarðarhöfn um þrjúleytið í dag og hefur hann nú verið dreginn upp úr sjónum.

Guðlaugur Jónasson, útgerðarmaður Hvítá HF-420, var staddur við Hafnarfjarðarhöfn í dag þegar hann frétti af því að einn báturinn þar hafði sokkið.

Hann segir erfitt að segja til um hvað hafi valdið því að svo hafi farið fyrir bátnum, það verði ljóst þegar búið er að rannsaka atvikið. Guðlaugur segist þó hræddur um að það gæti hafa sjósprungið sjórör í vélarrými bátsins, þar sem búið sé að vera ofboðslega kalt undanfarið. Það komi þó margt til greina.

„Ég er svolítið hræddur um að það hafi sjósprungið af því að það var ofboðslega kalt og svona opnir bátar með kannski vélum á miðju dekki og smáhlíf yfir.“

Að sögn Guðlaugs smíðaði Þorgrímur Hermannsson bátinn og var hann allur nýuppgerður.

Búið er að draga bátinn upp úr höfninni en Guðlaugur var viðstaddur og að hans sögn gekk vel að ná bátnum.

Búið er að draga bátinn upp úr höfninni.
Búið er að draga bátinn upp úr höfninni. Ljósmynd/Guðlaugur Jónasson
Ljósmynd/Guðlaugur Jónasson
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.8.24 487,39 kr/kg
Þorskur, slægður 27.8.24 335,12 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.8.24 198,15 kr/kg
Ýsa, slægð 27.8.24 160,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.8.24 188,48 kr/kg
Ufsi, slægður 27.8.24 191,43 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 27.8.24 223,77 kr/kg
Litli karfi 26.8.24 32,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 27.8.24 247,64 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.8.24 Esjar SH 75 Dragnót
Ýsa 430 kg
Steinbítur 191 kg
Skarkoli 140 kg
Sandkoli 131 kg
Langlúra 47 kg
Þorskur 47 kg
Þykkvalúra 4 kg
Hlýri 3 kg
Grálúða 3 kg
Samtals 996 kg
27.8.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Ýsa 353 kg
Langlúra 214 kg
Þorskur 43 kg
Síld 35 kg
Hlýri 25 kg
Steinbítur 24 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 717 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.8.24 487,39 kr/kg
Þorskur, slægður 27.8.24 335,12 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.8.24 198,15 kr/kg
Ýsa, slægð 27.8.24 160,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.8.24 188,48 kr/kg
Ufsi, slægður 27.8.24 191,43 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 27.8.24 223,77 kr/kg
Litli karfi 26.8.24 32,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 27.8.24 247,64 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.8.24 Esjar SH 75 Dragnót
Ýsa 430 kg
Steinbítur 191 kg
Skarkoli 140 kg
Sandkoli 131 kg
Langlúra 47 kg
Þorskur 47 kg
Þykkvalúra 4 kg
Hlýri 3 kg
Grálúða 3 kg
Samtals 996 kg
27.8.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Ýsa 353 kg
Langlúra 214 kg
Þorskur 43 kg
Síld 35 kg
Hlýri 25 kg
Steinbítur 24 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 717 kg

Skoða allar landanir »