Þýska fyrirtækið Baader hefur eignast allt hlutafé í Skaganum 3X, en samningur þess efnis var undirritaður í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skaganum 3X.
Baader keypti 60% hlutafjár í fyrirtækinu í lok árs 2020 eftir að fyrrverandi eigendur leituðu eftir fjárfestum til að styðja við félagið og rekstrarfélög þess. Baader hefur nú keypt eftirstandandi 40% hluti af IÁ-hönnun.
Í tilkynningunni er haft eftir Jeff Davis, stjórnarformanni Skagans 3X, að þessar fréttir séu góðar fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess. Fyrirtækið verði nú betur í stakk búið að takast á við skuldbindingar sínar og þær kröfur sem gerðar séu til fyrirtækisins.
Skaginn 3X verður nú hluti Baader-samstæðunnar og hefst samþætting starfsemi félaganna nú þegar og er reiknað með að henni ljúki á næstu mánuðum.
Jeff Davis, sem gegnt hefur starfi stjórnarformanns, verður áfram í því hlutverki og Guðjón Ólafsson mun áfram gegna starfi sem tímabundinn forstjóri.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 10.2.25 | 598,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 10.2.25 | 616,81 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 10.2.25 | 419,44 kr/kg |
Ýsa, slægð | 10.2.25 | 347,23 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 10.2.25 | 226,96 kr/kg |
Ufsi, slægður | 10.2.25 | 301,31 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 10.2.25 | 398,27 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
11.2.25 Cuxhaven NC 100 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 17.263 kg |
Samtals | 17.263 kg |
10.2.25 Bergur VE 44 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 12.641 kg |
Ýsa | 4.797 kg |
Karfi | 222 kg |
Samtals | 17.660 kg |
10.2.25 Sæli BA 333 Lína | |
---|---|
Þorskur | 264 kg |
Steinbítur | 94 kg |
Ýsa | 54 kg |
Langa | 48 kg |
Keila | 28 kg |
Samtals | 488 kg |
10.2.25 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 2.996 kg |
Steinbítur | 2.092 kg |
Ýsa | 1.987 kg |
Skarkoli | 17 kg |
Samtals | 7.092 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 10.2.25 | 598,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 10.2.25 | 616,81 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 10.2.25 | 419,44 kr/kg |
Ýsa, slægð | 10.2.25 | 347,23 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 10.2.25 | 226,96 kr/kg |
Ufsi, slægður | 10.2.25 | 301,31 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 10.2.25 | 398,27 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
11.2.25 Cuxhaven NC 100 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 17.263 kg |
Samtals | 17.263 kg |
10.2.25 Bergur VE 44 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 12.641 kg |
Ýsa | 4.797 kg |
Karfi | 222 kg |
Samtals | 17.660 kg |
10.2.25 Sæli BA 333 Lína | |
---|---|
Þorskur | 264 kg |
Steinbítur | 94 kg |
Ýsa | 54 kg |
Langa | 48 kg |
Keila | 28 kg |
Samtals | 488 kg |
10.2.25 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 2.996 kg |
Steinbítur | 2.092 kg |
Ýsa | 1.987 kg |
Skarkoli | 17 kg |
Samtals | 7.092 kg |