Þórhallur Jónsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Gullver NS, segir það hafa verið „snarvitlaust“ veður er skipið kom til hafnar á Seyðisfirði í nótt. Veiðin gekk vel á túrnum en þó það fiskaðist vel var veðrið ekki beint skemmtilegt. Skipið kom með 106 tonna afla, mest þorsk.
Þórhallur segir í færslu á vef Síldarvinnslunnar, sem gerir skipið út, að veiðiferðin hafi verið þokkaleg. „Það er ekki hægt að kvarta yfir veiðinni en hins vegar er veðrið umkvörtunarefni. Við fórum út á fimmtudagskvöld og vorum að veiðum á Breiðdalsgrunni, á Fætinum og á Gerpistotunni.“
„Það er varla nokkurn tímann friður hvað veður áhrærir og þannig hefur það verið frá áramótum. Á sunnudaginn var til dæmis varla veiðiveður. Við ætluðum að vera komnir í land áður en stórviðrið sem spáð var skylli á en það kom heldur snemma,“ útskýrir Þórhallur.
„Það var allt í lagi að sigla að landi en þegar við vorum komnir inn á Seyðisfjörð gerði snarvitlaust veður. Vindmælirinn hjá okkur á skipinu sýndi 40 metra og síðan fauk hann líklega af skipinu en við erum að fara að kanna það. Það gekk erfiðlega að leggjast að bryggjunni en nú er verið að landa úr skipinu.“
Áætlanir gera ráð fyrir að Gullver haldi til veiða á ný annað kvöld.
Fram kemur í færslunni að vinnsla hafi gengið vel í frystihúsinu á Seyðisfirði en glímt er við áhrif kórónuveirufaraldursins. Alls eru nú 11 starfsmenn smitaðir og hefur það áhrif á starfsemina.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 11.2.25 | 595,72 kr/kg |
Þorskur, slægður | 11.2.25 | 546,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 11.2.25 | 364,17 kr/kg |
Ýsa, slægð | 10.2.25 | 339,87 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 10.2.25 | 223,23 kr/kg |
Ufsi, slægður | 10.2.25 | 301,85 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 10.2.25 | 395,66 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
11.2.25 Sóley ÞH 28 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 38 kg |
Samtals | 38 kg |
11.2.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 4.153 kg |
Ufsi | 461 kg |
Karfi | 188 kg |
Ýsa | 123 kg |
Samtals | 4.925 kg |
11.2.25 Steinunn SF 10 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 41.792 kg |
Samtals | 41.792 kg |
11.2.25 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Ígulker Hvf C | 1.400 kg |
Samtals | 1.400 kg |
11.2.25 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 2.107 kg |
Steinbítur | 836 kg |
Ýsa | 822 kg |
Samtals | 3.765 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 11.2.25 | 595,72 kr/kg |
Þorskur, slægður | 11.2.25 | 546,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 11.2.25 | 364,17 kr/kg |
Ýsa, slægð | 10.2.25 | 339,87 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 10.2.25 | 223,23 kr/kg |
Ufsi, slægður | 10.2.25 | 301,85 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 10.2.25 | 395,66 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
11.2.25 Sóley ÞH 28 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 38 kg |
Samtals | 38 kg |
11.2.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 4.153 kg |
Ufsi | 461 kg |
Karfi | 188 kg |
Ýsa | 123 kg |
Samtals | 4.925 kg |
11.2.25 Steinunn SF 10 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 41.792 kg |
Samtals | 41.792 kg |
11.2.25 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Ígulker Hvf C | 1.400 kg |
Samtals | 1.400 kg |
11.2.25 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 2.107 kg |
Steinbítur | 836 kg |
Ýsa | 822 kg |
Samtals | 3.765 kg |