Óvissa vegna umfangsmikilla viðskipta í Úkraínu

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvnnslunnar, segir stjórnendur fyrirtækisins fylgjast með stöðunni …
Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvnnslunnar, segir stjórnendur fyrirtækisins fylgjast með stöðunni í Úkraínu og meta möguleg áhrif þess á fyrirtækið. mbl.is/Sigurður Bogi

Síldarvinnslan á útistandandi viðskiptakröfur í Úkraínu að verðmæti 9 milljóna bandaríkjadala, jafnvirði 1.144 milljóna íslenskra króna, og ríkir nú töluverð óvissa þar sem Úkraína hefur verið meðal mikilvægustu viðskiptalöndum fyrirtækisins.

Í pistli á vef Síldarvinnslunnar skrifar Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri útgerðarinnar, að á síðustu árum hefur Úkraína verið áfangastaður þriðjungs frosinna uppsjávarafurða fyrirtækisins, en þangað er selt töluvert af síld, makríl og loðnu. Vægi Úkraínu var enn meira 2019 og 2020 þegar var loðnubrestur.

Gengi hlutabréfa Síldarvinnslunnar hafa lækkað mest það sem af er degi, um 5,6% þegar þetta er ritað, en gengi bréfa annarra hafa einnig lækkað.

„Stríðsátökin í Úkraínu eru okkur öllum mikil harmtíðindi og er hugur okkar hjá fólkinu þar. Öll fordæmum við þær gegndarlausu árásir sem úkraínska þjóðin er að verða fyrir. […] Við höfum átt í umfangsmiklum viðskiptum þar í landi til margra ára og byggt þar upp gott og traust viðskiptasamband. Við eigum góða viðskiptavini þar og er hugur okkar hjá þeim og þeirra fólki,“ skrifar Gunnþór.

Skipi var snúið við

Hann segir mikla óvissu um þróun úkraínska markaðarins. „Stjórnendur Síldarvinnslunnar fylgjast náið með ástandinu og þróun mála þar í landi. Tekið skal fram að eitt fyrsta verkefni félagsins, eftir að fregnir bárust af átökunum, var að snúa við skipi sem var á leið til Odessa. Þær vörur verða fluttar aftur til Íslands á meðan staðan verður metin.“

Þá hafi verið framleitt töluvert af loðnu sem selja átti til Úkraínu og er fyrirtækið nú með töluvert af birgðum.

„Eins og sakir standa er of snemmt að draga skýrar ályktanir um möguleg áhrif ástandsins á viðskipti Síldarvinnslunnar í Úkraínu. Að sama skapi, í ljósi þess óvissuástands sem uppi er, er ekki unnt á þessu stigi málsins að leggja mat á möguleg áhrif ástandsins á afkomu félagsins,“ skrifar Gunnþór að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.1.25 530,91 kr/kg
Þorskur, slægður 10.1.25 666,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.1.25 311,13 kr/kg
Ýsa, slægð 10.1.25 245,17 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.1.25 266,60 kr/kg
Ufsi, slægður 10.1.25 298,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 10.1.25 341,64 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

10.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 2.870 kg
Þorskur 657 kg
Keila 118 kg
Hlýri 67 kg
Ufsi 13 kg
Samtals 3.725 kg
10.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.696 kg
Ýsa 3.572 kg
Steinbítur 629 kg
Langa 201 kg
Hlýri 34 kg
Keila 33 kg
Karfi 6 kg
Samtals 12.171 kg
10.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Þorskur 90 kg
Ýsa 83 kg
Steinbítur 57 kg
Langa 56 kg
Hlýri 48 kg
Keila 40 kg
Karfi 23 kg
Samtals 397 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.1.25 530,91 kr/kg
Þorskur, slægður 10.1.25 666,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.1.25 311,13 kr/kg
Ýsa, slægð 10.1.25 245,17 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.1.25 266,60 kr/kg
Ufsi, slægður 10.1.25 298,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 10.1.25 341,64 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

10.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 2.870 kg
Þorskur 657 kg
Keila 118 kg
Hlýri 67 kg
Ufsi 13 kg
Samtals 3.725 kg
10.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.696 kg
Ýsa 3.572 kg
Steinbítur 629 kg
Langa 201 kg
Hlýri 34 kg
Keila 33 kg
Karfi 6 kg
Samtals 12.171 kg
10.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Þorskur 90 kg
Ýsa 83 kg
Steinbítur 57 kg
Langa 56 kg
Hlýri 48 kg
Keila 40 kg
Karfi 23 kg
Samtals 397 kg

Skoða allar landanir »