Engar rannsóknir á áhrifum vindmyllugarða

Engar rannsóknir hafa verið framkvæmdar hér á landi á áhrifum …
Engar rannsóknir hafa verið framkvæmdar hér á landi á áhrifum vindmyllugarða á hafi úti á lífríki sjávar. Erlent félag stefnir að 10 gígavatta framleiðslu við Íslandsstrendur. Ljósmynd/Emelysjosasen

Erlent fjárfestingafyrirtæki sækist eftir því að reisa suðaustur af Íslandi 10 gígavatta vindmyllugarð sem ætlað er að framleiða orku sem flutt verður með sæstreng til Bretlands. Engar rannsóknir hafa þó verið framkvæmdar á áhrifum vindmyllugarða á hafi úti á lífríki sjávar hér á landi.

Norskir útgerðarmenn hafa gert athugasemdir við framkvæmdir af þessum toga í Noregi, eins hefur norska hafrannsóknastofnunin (Havforskningsinstituttet) meðal annars mælt gegn vindmyllugörðum á hrygningarleiðum og -svæðum.

Þegar blaðamaður leitaði til Hafrannsóknastofnunar vegna stöðu rannsókna á sviði vindmyllugarða til hafs hér á landi var fátt um svör. „Því miður kemur þú að nokkuð tómum kofa hvað þetta varðar en ekki hafa verið stundaðar rannsóknir í tengslum við vindorkuver í sjó á Hafrannsóknastofnun,“ segir í svari stofnunarinnar.

Spurt var meðal annars hvort stofnunin taki undir fullyrðingar norskra kollega sinna um hugsanleg neikvæð áhrif hljóðmengunar vindmylla á lífríki sjávar. Vísar Hafrannsóknastofnun til skýrslu Norðmannanna og er vakin sérstök athygli á að margir af þeim áhrifaþáttum sem ræddir eru eru taldir staðbundnir.

Ekki er hægt að fullyrða um neikvæð áhrif vindmyllugarða á hafi úti á fiskistofna eða sjávarspendýr að mati Hafrannsóknastofnunar þar sem slíkt fari „eftir því hvar vindorkuverin myndu rísa, hversu víðtækt raskið yrði og á hvaða tegundir fiska væri verið að horfa í þessu samhengi, en það má benda á það að í einhverjum tilfellum geta einnig komið fram „jákvæð“ áhrif af uppbyggingu í sjó, þ.e.a.s. að manngerðir strúktúrar geta skapað búsvæði fyrir tegundir sem við myndum telja ákjósanlegar. Líkt og bent er þó á í þessari skýrslu þá þurfa ákvarðanir um uppbyggingu vindorkuvera að taka mið af því raski og áhrifum sem slíkar framkvæmdir geta haft og hafa ber sérstaklega í huga farleiðir fugla, hvala og fiska, búsvæði sjávarlífvera og hrygningarsvæði nytjastofna.“

Telur Hafrannsóknastofnun að ráðlegt sé að hefja uppbyggingu vindmylla til hafs hér á landi án frekari rannsókna á áhrifum á lífríki sjávar? „Uppbyggingu vindorkuvera á hafi úti þyrfti að skoða m.t.t. áhrifa á umhverfi og lífríki (umhverfismat) en það á að sjálfsögðu við um allar framkvæmdir að þeirri stærðargráðu sem hér er fjallað um.“

Stefnt að 10 gígavöttum

Ekki eru margir að vinna að því að koma upp vindmyllugörðum á hafi úti hér á landi, en félagið Hectate Independent Power (HIP) er með háleit áform um að reisa vindmyllugarða við Íslandsstrendur sem framleiða 10 gígavött sem seld verða gegnum sæstreng til Bretlands.

Fyrsta skrefið í þessum áætlunum er að koma upp vindmyllum suðaustur af Íslandi undir merkjum Kára energy. Verði af áformunum verða vindmyllugarðarnir tveir með um 85 vindmyllur hvor og framleiða samtals 2.000 megavött. Áætlanir miða að því að garðarnir verði um 20 til 40 kílómetra frá landi.

HIP er í eigu bandaríska orkufyrirtækisins Hectate Energy LLC og breska orkufyrirtækisins Independent Power Corporation PLC.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg
24.7.24 Kolga BA 70 Handfæri
Ufsi 5.813 kg
Karfi 191 kg
Langa 106 kg
Samtals 6.110 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg
24.7.24 Kolga BA 70 Handfæri
Ufsi 5.813 kg
Karfi 191 kg
Langa 106 kg
Samtals 6.110 kg

Skoða allar landanir »