Ísland greiddi atkvæði með brottvísun Rússlands

Rússnesk skip í Hafnarfjarðarhöfn fyrir nokkrum árum. Ísland studdi tillögu …
Rússnesk skip í Hafnarfjarðarhöfn fyrir nokkrum árum. Ísland studdi tillögu um að vísa Rússlandi tímabundið úr ICES. mbl.is/Jim Smart

Rússlandi hefur tímabundið verið vísað úr Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES) en fulltrúaráð ráðsins samþykkti tillögu þess efnis með atkvæðum 18 ríkja gegn einu, en eitt ríki sat hjá. Ísland var eitt þeirra ríkja sem greiddi atkvæði með brottvísuninni, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

„Ljóst er að brotthvarf Rússlands getur haft talsverð áhrif til lengri, t.d. hvað varðar ráðgjöf vegna veiða á úthafskarfa. Brotthvarfið hefur þó mest áhrif á samstarf ráðsins um Barentshafið en mun einnig hafa áhrif í Eystrasaltinu og á ráðgjöf sameiginlegra stofna þar sem rússneskir vísindamenn safna gögnum fyrir þá ráðgjöf,“ segir í tilkynningunni.

Alls eiga 20 ríki við Norðaustur-Atlantshaf aðild að ráðinu og er Ísland eitt þeirra. Hafrannsóknastofnun er sögð hafa átt mikið samstarf við ráðið um rannsóknir og ráðgjöf.

Í ályktun fulltrúaráðs ICES segir meðal annars: „Til  að geta uppfyllt skyldur okkar og sinnt verkefnum fyrir þá sem óska eftir ráðgjöf frá ICES  þarf víðtækt samstarf við lykilsérfræðinga. […] Stríðið í Úkraínu grefur undan víðtæku samstarfi  margra vísindastofnana, þar á meðal ICES.“

Allir fundir áfram á dagskrá

Allir fundir ráðsins frá og með deginum í dag eru enn á dagskrá óháð brotthvarfi Rússa. Þá fer fram rýnifundur um aflareglur steinbíts, löngu, keilu og skarkola í næstu viku. „Það bendir því allt til að ráðgjöf ICES um þá stofna sem eru innan íslensku lögsögunnar og samningur ráðsins og Íslands nær yfir, muni koma út þann 15. júní eins og upphaflega var stefnt að. Frestun á fundum myndi hafa í för með sér áhrif á tímasetningu og gæði ráðgjafar innanlands,“ segir í tilkynningu íslenskra stjórnvalda

Vakin er athygli á því að framkvæmdastjórn ICES mun fylgjast með gangi mála og leggja fram tillögu um að hleypa Rússum aftur í ráðið þegar viðeigandi þykir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg
24.7.24 Kolga BA 70 Handfæri
Ufsi 5.813 kg
Karfi 191 kg
Langa 106 kg
Samtals 6.110 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg
24.7.24 Kolga BA 70 Handfæri
Ufsi 5.813 kg
Karfi 191 kg
Langa 106 kg
Samtals 6.110 kg

Skoða allar landanir »