Samherji kaupir Akraberg

Togarinn Akraberg FO fær nafnið Snæfell EA með heimahöfn á …
Togarinn Akraberg FO fær nafnið Snæfell EA með heimahöfn á Akureyri. Hann verður gerður út til veiða á grálúðu sem verður heilfryst um borð. Ljósmynd/framherji.fo

Samherji hefur keypt frystitogarann Akraberg FO af Framherja í Færeyjum, sem Samherji á þriðjungshlut í. Skipið var smíðað 1994 í Noregi fyrir Hrönn hf. á Ísafirði og hét upphaflega Guðbjörg ÍS.

„Við ætlum að nota skipið til að veiða grálúðu í íslensku lögsögunni,“ sagði Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri Samherja. Grálúðan verður hausuð, sporðskorin og heilfryst um borð. Skipið er væntanlegt í næsta mánuði. Það mun fá nafnið Snæfell og heimahöfn þess verður á Akureyri. Það verður hrein viðbót við flota Samherja og reiknar Kristján með að 18 menn verði í áhöfn. Hann sagði að skipinu hefði verið vel viðhaldið og alltaf fiskað vel.

Hrönn hf. rann inn í Samherja 1997 sem þá eignaðist togarann. Hann var seldur til Þýskalands og hét þá Hannover NC. Skipið kom aftur í flota Samherja 2002, var lengt um tæpa 18 metra, breytt í fjölveiðiskip og fékk nafnið Baldvin Þorsteinsson EA. Það fór aftur til Þýskalands 2007. Framherji keypti skipið 2013 og hefur gert út síðan. Framherji fær nýjan togara í næsta mánuði og þess vegna var Akrabergið selt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.7.24 496,50 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.7.24 315,52 kr/kg
Ýsa, slægð 19.7.24 231,85 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.7.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 16 kg
Steinbítur 13 kg
Samtals 29 kg
20.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 319 kg
Samtals 319 kg
20.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 261 kg
Samtals 261 kg
20.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng
Þorskur 259 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 10 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 289 kg
20.7.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 389 kg
Samtals 389 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.7.24 496,50 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.7.24 315,52 kr/kg
Ýsa, slægð 19.7.24 231,85 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.7.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 16 kg
Steinbítur 13 kg
Samtals 29 kg
20.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 319 kg
Samtals 319 kg
20.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 261 kg
Samtals 261 kg
20.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng
Þorskur 259 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 10 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 289 kg
20.7.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 389 kg
Samtals 389 kg

Skoða allar landanir »