Stjórnvöld telja vert að skoða mögulegan ávinning af því að koma á bólusetningarskyldu gagnvart ISA-veirunni sem valdið hefur blóðþorra í sjókvíaeldi á Íslandi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.
Þar segir að Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hafi ákveðið að skipa starfshóp til að skoða smitvarnir og sjúkdóma í fiskeldi og vinna að tillögum um breytingar ef þörf þykir. Þá verður hópnum falið að yfirfara lög og reglugerðir um laxeldi og framkvæmd þeirra.
„Nú hefur blóðþorri verið staðfestur í öllum kvíum í Reyðarfirði og grunur er á smiti víðar. Það verður að grípa til allra hugsanlegra leiða til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Náttúra Íslands er okkar fjöregg og okkar skylda að vernda hana sem best við getum,“ segir Svandís.
Kynni sér Færeyjar
„Lögð er áhersla á að hópurinn skoði meðal annars hvernig laxeldi fer fram í Færeyjum en þar eru fyrirtæki með hvert svæði einangrað og aðeins ein kynslóð laxa alin upp hverju sinni. Einnig eru miklar takmarkanir hafðar á samgangi á milli eldissvæða í Færeyjum,“ segir í tilkynningunni. Svandís var fyrr á árinu í ferð til Færeyja þar sem hún kynnti sér fyrirkomulag sjókvíaeldis þar í landi.
Fulltrúi matvælaráðuneytisins mun leiða vinnunna en óskað verður eftir tilnefningum frá Matvælastofnun, Hafrannsóknastofnun, Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum og mögulega óháðum erlendum sérfræðingi.
Þetta er ekki fyrsti starfshópurinn sem Svandís skipar en hún tikynnti um fjóra aðra slíka auk verkefnisstjórn og samráðsnefnd í gær, en þeim er ætlað að kryfja fiskveiðistjórnunarkerfið. Mun ráðherrann því hafa skipað að minnsta kosti 51 einstakling í ýmiskonar nefndarstörf á skömmum tíma.