„Stjórnvöld þurfa að gyrða sig í brók“

Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir óásættanlegt að það komi …
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir óásættanlegt að það komi reglulega fyrir að engin þyrla sé til taks. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, fagnar þeim mikla árangri sem náðst hefur í öryggismálum sjómanna í pistli sínum í sjómannadagsblaði 200 mílna. Betur má ef duga skal að hans mati.

Segir Valmundur stöðu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar „til háborinnar skammar“ í pistlinum. „Hér eru þrjár þyrlur. Samt kemur fyrir að engin þyrla er til taks eða áhöfn ekki til staðar.“

„Stjórnvöld þurfa að gyrða sig í brók og veita nægt fé til LHG svo mannsbragur sé að. Þetta ástand er algerlega óþolandi. Þjóðin treystir á sjávarútveginn sem okkar helstu tekjuöflunarstoð fyrir þjóðarbúið,“ skrifar Valmundur.

Pistill Valmundar í heild sinni:

Gerum alvöru atlögu að því að útrýma slysum

Enn á ný er runninn upp sjómannadagur. Sjómenn um land allt fagna og skemmta sér og sínum.

Það sem upp úr stendur er sú staðreynd að enginn sjómaður hefur farist við störf sín fimm ár í röð frá árinu 2017. Öryggisvitund og öryggismenning til sjós kemur þar mjög við sögu. Með tilkomu Slysavarnaskóla sjómanna 1985 hefur grettistaki verið lyft í öryggismálum sjómanna. Þegar stefnan var sett á 0 dauðaslys til sjós voru uppi efasemdarraddir sem héldu því fram að það væri ómögulegt. Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskólans, blés á þessar raddir ásamt sjómannaforustunni. Það á að vera regla, ekki undantekning, að sjómenn komi heilir heim af sjónum. Nú er sannað að þetta er hægt. Höldum áfram á sömu braut og gerum alvöru atlögu að því að útrýma slysum til sjós.

Öryggishandbók

Nú eru mörg útgerðarfyrirtæki og áhafnir þeirra að taka í notkun öryggisstjórnunarkerfi sem byggist á að fræða sjómenn um öryggismál, hvetja til æfinga og skrá þær. Skrá öll slys og næstum því slys. Öryggistrúnaðarmenn eru á mörgum skipum og öryggisstjórar eða teymi hjá útgerðunum. Markmiðið með öryggishandbókinni er að allir vinni saman að einu markmiði, að allir komi heilir heim. Með tíð og tíma og æfingunni verður þetta partur af daglegu rútínunni. Öryggisvitund og menningin verður greypt í huga sjómanna. Ég brýni sjómenn að nýta sér þá fræðslu sem er í boði á hverjum tíma. T.d. er Rannsóknarnefnd samgönguslysa komin með nýtt skráningarkerfi slysa, Atvik. Þar geta sjómenn og útgerðir skráð slys og næstum því slys á netinu. Ég skora á sjómenn að kynna sér Atvik og virkni þess.

Björgunarför Íslendinga

Því ber að fagna og hrósa sem vel er gert. Tekist hafa samningar um að endurnýja allan björgunarskipakost Landsbjargar. Þarft verk og löngu tímabært.

Þyrlumálin eru aftur á móti til háborinnar skammar. Hér eru þrjár þyrlur. Samt kemur fyrir að engin þyrla er til taks eða áhöfn ekki til staðar. Þessu má líkja við stríðsástand. Er búið að skjóta niður tvær eða þrjár þyrlur? Eða eru varðskipin að leita hafnar sundurskotin? Hvað er í gangi, ágætu ráðamenn? Ef slys verða til sjós utan 20 sjómílna frá landi og ein þyrla er til taks fer hún ekki lengra út. Tæpt hefur staðið með líf og limi sjómanna og annara þegna landsins vegna þessa. Starfsfólk LHG og læknavaktin hafa lýst þungum áhyggjum. Ekki nóg með það, nú berast fréttir af færri úthaldsdögum skipakosts LHG. Það er ekki nóg að kaupa flottan búnað. Búnaðinum þarf að fylgja fjármagn frá hinu opinbera til reksturs. Meðan svo er ekki eru þyrlurnar kyrrsettar og skipin í höfn engum til gagns. Sjómennirnir okkar heyja sína glímu við Ægi alla daga ársins og ekki spurt um hvort þyrlur eða varðskip séu til taks. Það er einfaldlega ætlast til þess. Það er óeigingjörn og sanngjörn krafa.

Stjórnvöld þurfa að gyrða sig í brók og veita nægt fé til LHG svo mannsbragur sé að. Þetta ástand er algerlega óþolandi. Þjóðin treystir á sjávarútveginn sem okkar helstu tekjuöflunarstoð fyrir þjóðarbúið. Þegar kemur að mannslífum og heilsu sjómannanna okkar er eins og allir snúi sér undan og kannist ekki við neitt. Hagræðing er töfraorðið sem ráðamenn setja fram til að firra sig ábyrgð. Allt er skorið inn að beini og ekkert svigrúm til að gera björgunarbúnaðinn út með sómasamlegum hætti. Skammarlegt.

Kjaramálin

Samningar sjómanna hafa verið lausir frá desember 2019. Lítið sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt þrátt fyrir marga fundi. Tilboð kom frá útgerðinni í vor. Þar komu fram nýjar kröfur þannig að sjómenn myndu sjálfir greiða fyrir þær kjarabætur sem farið er fram á. Alltaf er slegið úr og í. Ekkert klárað. Sjómenn hafa sammælst um að 3,5% í tilgreinda séreign í lífeyrissjóði komi til sjómanna sem og annars launafólks. Ef einhver atvinnugrein hefur efni á því er það útgerðin. Afkomutölurnar ljúga ekki. Ef sjómenn eiga að greiða fyrir þessar kjarabætur sjálfir er betra að þeir geri það á sínum forsendum en ekki á forsendum útgerðarinnar með lækkun hlutaskipta. Aðrar kröfur okkar eru hófsamar og kosta útgerðina lítið sem ekkert. Minni á að útgerðin hefur fengið afslátt af tryggingagjaldi til að fjármagna tilgreinda séreign eins og aðrir atvinnurekendur. Einnig hefur kauptrygging sjómanna ekki hækkað síðan 1. maí 2019. Það telur í kassann hjá þeim og fleira væri hægt að tína til.

Það stefnir í átök með haustinu ef ekki fer að ganga saman.

Kæru sjómenn og fjölskyldur, landsmenn allir til sjávar og sveita. Gleðilega sjómannadagshátíð.

Göngum hægt um gleðinnar dyr. Komum öll heil heim.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Ásbjörn RE 51 Handfæri
Þorskur 798 kg
Samtals 798 kg
16.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 701 kg
Karfi 63 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 774 kg
16.7.24 Bára HF 78 Handfæri
Þorskur 799 kg
Samtals 799 kg
16.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri
Þorskur 289 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 293 kg
16.7.24 Örnólfur AK 63 Handfæri
Þorskur 444 kg
Ufsi 12 kg
Samtals 456 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Ásbjörn RE 51 Handfæri
Þorskur 798 kg
Samtals 798 kg
16.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 701 kg
Karfi 63 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 774 kg
16.7.24 Bára HF 78 Handfæri
Þorskur 799 kg
Samtals 799 kg
16.7.24 Viðvík SH 119 Handfæri
Þorskur 289 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 293 kg
16.7.24 Örnólfur AK 63 Handfæri
Þorskur 444 kg
Ufsi 12 kg
Samtals 456 kg

Skoða allar landanir »