Hafnarfjarðarhöfn er fyrsta höfnin á Íslandi til að bjóða viðskiptavinum sínum að tengjast öflugum rafmagnslandtengingum þar sem skip geta fengið afl allt að 1,2 MW, að því er fram kemur í tilkynningu. Þar segir að með þessum nýju tengingum er skipum gert kleift að fá rafmagn sem er í samræmi við rafmagnskerfi skipsins hvort sem það eru 400, 440 eða 690 volt á 50 eða 60 riðum.
Frystisogarinn Baldvin Njálsson GK-400, sem Nesfiskur gerir út, varð á föstudag fyrsta skipið sem tengdist kerfinu, 440 volt á 60 riðum.
Þá kom franska farþegaskipið Le Bellot, í eigu Le Ponant, ig tengdist kerfinu á sjómannadag og var það í fyrsta sinn sem farþegaskip tengist landstraumi hérlendis, en auk þess var þetta í fyrsta skipti sem skipið tengist landstraumi.
Umrædd landtenging er fyrsti áfangi í stærra verkefni og nemur kostnaður hans 240 milljónum króna. Stefnt er að frekari uppbyggingu landtenginga í Hafnarfjarðarhöfn og einnig í Straumsvík og er áætlaður heildarkostnaður vegna verkefnanna um 600 milljónir króna.
Með tengingunni þurfa skip ekki að brenna jarðefnaeldsneyti við bryggju en áætlað er að um 14 % af eldsneytisnotkun skipa gerist við bryggju.
„Nú í sumar er gert ráð fyrir að farþegaskipið Le Bellot komi um 10 sinnum til Hafnarfjarðarhafnar. Gera má ráð fyrir að skipið þurfi um 600 kW sem gerir um 20.000 kWh í hverri inniveru. Með því að nýta raforku með landtengingu minnkar gróðurhúsamengun við hverja inniveru Le Bellot um það bil um 14.000 kg kolefnistvíildis eða CO2, þ.e. 14 tonn. Miðað við 10 inniverur yfir sumarið minnkar mengunin því um 140 tonn CO2. Einnig hefur þetta mikil áhrif á loftgæði þar sem hvorki verður til köfnunarefnisoxíð, NOx, né fastar svifryksagnir PM10 eða PM2,5 né heldur neinar sótagnir SOx. Einnig má hafa í huga að landtenging dregur verulega úr hávaða frá skipum,“ segir í tilkynningunni.
Vakin er þó athygli á að almennt séu skip ekki búin búnaði sem geri þeim kleift að tengjast rafmagni við bryggju, en að koma slíkum búnaði upp um borð á ekki að vera kostnaðarsöm aðgerð. Þá er jafnframt ljóst að eldsneytiskostnaður skipsins verði minni.
Tvær háspennutengingar eru í Hafnarfjarðarhöfn, ein á Hvaleyrarbakka og önnur á Suðurbakka. Spenni- og tíðnibúnaður er í sérútbúnum flytjanlegum gámum, tveimur 10 feta og einum 20 feta. Til að flytja rafmagnið um borð eru notaðar rafdrifnar kapalvindur af Zinus gerð þar sem hver rafmagnskapall getur flutt 350 amper.
Með spennibúnað er síðan hægt að stjórna því hvort spennan er 400, 440 eða 690 Volt og hvort tíðnin er 50 eða 60 rið.
Framkvæmd verkefnisins er sögð hafa verið tvíþætt, annars vegar háspennuhluti og hins vegar lágspennuhluti. „Eftir útboð á háspennuhluta var samið við fyrirtækið Orkuvirki sem annaðist framkvæmdir við uppsetningu á Hvaleyrarbakka og Suðurbakka. Hönnun á háspennuhlutanum var í höndum Jón Björns Bragasonar rafmagnstæknifræðings.“
Lágspennubúnaður var boðinn út sem alverk og annaðist Ríkiskaup útboðið í samræmi við tæknilýsingu J2B ráðgjöf og Sætækni ehf. Norska fyrirtækið PSW Power and Automation átti lægsta tilboð og var samið við það.