„Það er ekkert eftir,“ segir Birgir Haukdal Rúnarsson, eigandi strandveiðibátsins Gosa KE-102, sem brann í morgun á meðan báturinn var um tvær sjómílur norður af Rifi.
Birgir er nú á leiðinni vestur til að kynna sér málið og til að hlúa að skipstjóranum. Eins og mbl.is greindi frá sakaði sjómanninn ekki og náði hann að koma sér í björgunarbát og þaðan í nærstaddan fiskveiðibát eftir að eldur komst í bátinn.
Birgir segir að hann hafi verið að fara leggja sig í morgun eftir að hafa verið á sjó í alla nótt þegar honum bárust fréttir af slysinu. „Ég var bara á leiðinni heim í koju í morgun og þá hringdu í mig aðrir skipstjórar og sögðust hafa heyrt mayday, mayday frá Gosa og að báturinn væri að brenna,“ segir Birgir og bætir við að verst hafi verið óvissan sem fylgdi þegar hann náði ekki sambandi við skipstjórann. „Þetta var hryllingur,“ segir Birgir um þessa upplifun.
Segist Birgir þá hafa verið í hálfgerðu áfalli en að sem betur fer hafi hann síðan fengið upplýsingar frá Landhelgisgæslunni sem að staðfestu að skipstjórinn væri í lagi.
Að mati Birgis er það sorglegt að sjá eftir bátnum Gosa þar sem að báturinn hefur fylgt honum um árabil. „Það er ekkert eftir, það er engin leið,“ segir Birgir og staðfestir að um heilmikið tjón sé að ræða.
Að sögn Birgis er skipstjórinn í lagi en sé skiljanlega verulega brugðið. Í lokin tekur Birgir fram að hann sé þakklátur þeim sem komu skipstjóranum til bjargar. „Ég er þakklátur fyrir það að hann slasaðist ekki og að ekkert tjón var á mannskap.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.1.25 | 629,30 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.1.25 | 694,78 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.1.25 | 415,51 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.1.25 | 287,52 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.1.25 | 279,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.1.25 | 251,32 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 14.1.25 | 21,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.1.25 | 234,68 kr/kg |
20.1.25 Fjølnir GK 757 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.098 kg |
Ýsa | 2.880 kg |
Langa | 582 kg |
Samtals | 10.560 kg |
20.1.25 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Ígulker Bf B | 1.020 kg |
Samtals | 1.020 kg |
20.1.25 Bergur VE 44 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 39.967 kg |
Ýsa | 11.514 kg |
Ufsi | 4.916 kg |
Karfi | 3.517 kg |
Samtals | 59.914 kg |
20.1.25 Harðbakur EA 3 Botnvarpa | |
---|---|
Steinbítur | 8.204 kg |
Þorskur | 4.428 kg |
Skarkoli | 4.215 kg |
Karfi | 2.194 kg |
Ýsa | 1.184 kg |
Þykkvalúra | 889 kg |
Samtals | 21.114 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.1.25 | 629,30 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.1.25 | 694,78 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.1.25 | 415,51 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.1.25 | 287,52 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.1.25 | 279,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.1.25 | 251,32 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 14.1.25 | 21,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.1.25 | 234,68 kr/kg |
20.1.25 Fjølnir GK 757 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.098 kg |
Ýsa | 2.880 kg |
Langa | 582 kg |
Samtals | 10.560 kg |
20.1.25 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Ígulker Bf B | 1.020 kg |
Samtals | 1.020 kg |
20.1.25 Bergur VE 44 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 39.967 kg |
Ýsa | 11.514 kg |
Ufsi | 4.916 kg |
Karfi | 3.517 kg |
Samtals | 59.914 kg |
20.1.25 Harðbakur EA 3 Botnvarpa | |
---|---|
Steinbítur | 8.204 kg |
Þorskur | 4.428 kg |
Skarkoli | 4.215 kg |
Karfi | 2.194 kg |
Ýsa | 1.184 kg |
Þykkvalúra | 889 kg |
Samtals | 21.114 kg |