Síldarvinnslan kaupir Vísi

Síldarvinnslan hf. hefur fest kaup á öllu hlutafé Vísis í …
Síldarvinnslan hf. hefur fest kaup á öllu hlutafé Vísis í Grindavík. Kaupin eru háð samþykki hluthafafundar og Samkeppniseftirlitsins. Ljósmynd/Jón Steinar Sæmundsson

Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað hefur keypt allt hlutafé sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis hf. í Grindavík fyrir 20 milljarða króna. Vaxtaberandi skuldir Vísis hf. nema um 11 milljörðum króna og nema viðskiptin því samtals um 31 milljarði króna.

Vaxtaberandi skuldir Vísis nema um 11 milljörðum króna og nema viðskiptin því samtals um 31 milljarði króna.

Síldarvinnslan og Vísir eru sammála um að með viðskiptunum sé staða beggja félaga styrkt til framtíðar, að því er fram kemur í tikynningu frá Síldarvinnslunni til Kauphallarinnar. Vísir verði rekið sem dótturfélag Síldarvinnslunnar.

Útlit fyrir að heimildir verði yfir viðmiðunarmörkum

Verði viðskiptin staðfest af hluthafafundi Síldarvinnslunnar hf. og Samkeppniseftirlitinu er útlit fyrir að núverandi fiskveiðiheimildir Síldarvinnslunnar hf. verði lítillega yfir gildandi viðmiðunarmörkum, segir í tilkynningunni. Komi til þess hefur félagið sex mánuði til að laga sig að þessum viðmiðum.

Veiðiheimildir í uppsjávartegundum, einkum loðnu, eru breytilegar milli ára og hafa því óhjákvæmilega áhrif á kvótaþak frá ári til árs. Tekur Síldarvinnslan fram að enn ríki óvissa um úthlutanir í aflaheimildum uppsjávarfisks á næsta ári.

Höfuðstöðvar bolfiskvinnslu Síldarvinnslunnarverða hjá Vísi í Grindavík og verður Pétur Hafsteinn Pálsson áfram framkvæmdastjóri Vísis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.8.24 461,39 kr/kg
Þorskur, slægður 23.8.24 369,93 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.8.24 268,44 kr/kg
Ýsa, slægð 23.8.24 235,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.8.24 161,02 kr/kg
Ufsi, slægður 23.8.24 274,20 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.8.24 209,61 kr/kg
Litli karfi 16.8.24 37,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 22.8.24 29,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.8.24 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 915 kg
Steinbítur 460 kg
Ýsa 293 kg
Keila 126 kg
Ufsi 21 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 1.824 kg
24.8.24 Sævík GK 757 Lína
Þorskur 13.001 kg
Hlýri 190 kg
Keila 163 kg
Karfi 151 kg
Grálúða 2 kg
Samtals 13.507 kg
24.8.24 Jón Hákon BA 61 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 2.027 kg
Samtals 2.027 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.8.24 461,39 kr/kg
Þorskur, slægður 23.8.24 369,93 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.8.24 268,44 kr/kg
Ýsa, slægð 23.8.24 235,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.8.24 161,02 kr/kg
Ufsi, slægður 23.8.24 274,20 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.8.24 209,61 kr/kg
Litli karfi 16.8.24 37,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 22.8.24 29,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.8.24 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 915 kg
Steinbítur 460 kg
Ýsa 293 kg
Keila 126 kg
Ufsi 21 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 1.824 kg
24.8.24 Sævík GK 757 Lína
Þorskur 13.001 kg
Hlýri 190 kg
Keila 163 kg
Karfi 151 kg
Grálúða 2 kg
Samtals 13.507 kg
24.8.24 Jón Hákon BA 61 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 2.027 kg
Samtals 2.027 kg

Skoða allar landanir »