Afgreiðsla MAST dróst um 39 mánuði

Langreyður dregin inn í hvalstöðina í Hvalfirði.
Langreyður dregin inn í hvalstöðina í Hvalfirði. mbl.is/Golli

Matvælaráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að óréttlætanlegar tafir hafi orðið á útgáfu starfsleyfis til vinnslu hvalaafurða. Er það því mat ráðuneytisins að málsmeðferð Matvælastofnunar hafi falið í sér brot á málshraðareglu stjórnsýslulaga.

Þá segir í úrskurðinum að óréttlætanlegar tafir megi rekja til seinagangs í svörum og ómarkvissrar rannsóknar Matvælastofnunar.

Í úrskurðinum kemur fram að þrátt fyrir að dráttur hafi verið á svörum kæranda við fyrirspurnum stofnunarinnar „þá getur það ekki réttlætt að afgreiðsla málsins hafi dregist svo mjög sem raunin varð, þ.e. í rúma 39 mánuði“.

Í málinu var kærður óhóflegur dráttur á málsmeðferð vegna útgáfu starfsleyfisins en í júní 2018 framkvæmdi Matvælastofnun úttekt á starfsstöð kæranda vegna starfsleyfisumsóknar hans en honum var ekki veitt formlega ótímabundið leyfi til vinnslu hvalaafurða fyrr en í október 2021.

Breyti engu þó kærandi hafi ekki stundað hvalveiðar síðustu ár

„Engu breytir í þeim efnum hvort að starfsleyfisútgáfan hafi átt þátt í því að kærandi hefur ekki stundað hvalveiðar síðastliðin ár. Um það úrlausnarefni er ekki fjallað hér,“ sagði enn fremur.

Segir að meginreglan sé sú að þar tilbært stjórnvald beri ábyrgð á því að máli fari eðlilegan farveg og fái afgreiðslutíma í samræmi við ákvæði laga. Matvælastofnun hafi því borið að setja kæranda fresti til að svara erindum og leiðbeina um hvaða afleiðingar það hefði ef ekki yrði brugðist við.

Ráðuneytið bendir einnig á að stjórnvaldi ber lögum samkvæmt að skýra málsaðila frá því ef fyrirsjáanlegt er að afgreiðsla máls muni tefjast. Ekki verði séð að þeirri skyldu hafi verið sinnt af hálfu Matvælastofnunar.

Þá segir að Matvælastofnun hafi gefið þá ástæðu fyrir seinum svörum að legið hafi fyrir að kærandi yrði ekki með neina starfsemi í hvalastöðinni sumarið 2021 og því hafi málið ekki getað talist brýnt.

Hafi stofnunin talið að það yrði til þess að draga afgreiðslu málsins bar henni að upplýsa kæranda um þær tafir, segir í úrskurðinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.1.25 588,06 kr/kg
Þorskur, slægður 26.1.25 686,25 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.1.25 347,89 kr/kg
Ýsa, slægð 26.1.25 312,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.1.25 234,70 kr/kg
Ufsi, slægður 26.1.25 295,56 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 26.1.25 246,12 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.151 kg
Ýsa 3.831 kg
Steinbítur 313 kg
Langa 234 kg
Keila 78 kg
Karfi 12 kg
Hlýri 8 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 12.631 kg
25.1.25 Jónína Brynja ÍS 55 Lína
Steinbítur 293 kg
Þorskur 178 kg
Ýsa 113 kg
Hlýri 19 kg
Karfi 7 kg
Langa 3 kg
Samtals 613 kg
25.1.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 1.069 kg
Ýsa 472 kg
Keila 133 kg
Steinbítur 8 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 1.689 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.1.25 588,06 kr/kg
Þorskur, slægður 26.1.25 686,25 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.1.25 347,89 kr/kg
Ýsa, slægð 26.1.25 312,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.1.25 234,70 kr/kg
Ufsi, slægður 26.1.25 295,56 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 26.1.25 246,12 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.151 kg
Ýsa 3.831 kg
Steinbítur 313 kg
Langa 234 kg
Keila 78 kg
Karfi 12 kg
Hlýri 8 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 12.631 kg
25.1.25 Jónína Brynja ÍS 55 Lína
Steinbítur 293 kg
Þorskur 178 kg
Ýsa 113 kg
Hlýri 19 kg
Karfi 7 kg
Langa 3 kg
Samtals 613 kg
25.1.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 1.069 kg
Ýsa 472 kg
Keila 133 kg
Steinbítur 8 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 1.689 kg

Skoða allar landanir »