Nokkuð óvænt sýna bráðbirgðaniðurstöður uppsjávarvistkerfisleiðangurs í Norðurhöfum sem lauk 21. júlí, að magn og útbreiðsla makríls í íslenskri landhelgi er mun meira en undanfarin tvö sumur.
„Makríll fannst meðfram suður- og vesturströnd landsins, bæði á landgrunninu og utan þess,“ segir í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar. „Fyrir sunnan, fannst makríll í Íslandsdjúpi suður að 62 °N breiddargráðu en makríll hefur ekki fengist í þessum leiðangri svo sunnarlega síðan sumrið 2016. Bráðabirgðaniðurstöður frá norsku og færeysku rannsóknarskipunum sýndu að makríll var einnig að finna austan við land.“
Leiðangurinn er alþjóðlegur og tóku sex skip þátt, rannsóknaskipið Árni Friðriksson fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar. Útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar og kolmunna í íslenskri landhelgi var rannsökuð að undanskildum austurhluta hennar sem Færeyingar og Norðmenn rannsökuðu.
Þá segir að gögn frá skipunum sex sem tóku þátt í leiðangrinum verða tekin saman og greind upp úr miðjum ágúst og niðurstöður kynntar undir lok ágúst.
Útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar og hrognkelsa (rauðir fylltir hringir) ásamt hitastigi í yfirborðslagi sjávar (10 m dýpi). Yfirborðstogstöðvar með engum afla af viðkomandi tegund er merktar með bláum punkt. Athugið að kvarði fyrir þéttleika er mismunandi milli tegunda.
Mynd/Hafrannsóknastofnun
7 þúsund kílómetrar
„Líkt og undanfarin ár var norsk-íslenska vorgotssíld að finna á flestum togstöðvum fyrir norðan og austan landið og íslensk sumargotssíld á landgrunninu fyrir sunnan og vestan landið. Kynþroska kolmunni mældist við landgrunnsbrúnina sunnan og vestan við landið. Magn og útbreiðsla hrognkelsa var minni í ár en undanfarin ár. Í leiðangrinum voru merkt alls 64 hrognkelsi,“ segir í tilkynnignunni.
Þá sýna bráðabirgðaniðurstöður að hitastig í yfirborðslagi var álíka og sumarið 2021 og aðeins hlýrra en sumarið 2020.
Leiðangur Árna Friðrikssonar stóð í 18 daga og voru teknar 48 togstöðvar í kringum landið og sigldar um 3.800 sjómílur eða 7 þúsund kílómetrar. Þá voru gerðar sjómælingar og teknir átuháfar á öllum yfirborðstogstöðvum.