„Ný reglugerð um smíði, hönnun og búnað skipa með mestu lengd allt að 15 metrum hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar,“ segir í svari innviðaráðuneytisins við spurningu blaðamanns um hvaða vinna hafi farið fram í ráðuneytinu í tengslum við mótun regluverks um siglingar RIB-báta frá því að bættar öryggisreglur voru boðaðar árið 2018.
Tilefni fyrirspurnarinnar var áminning um þörf á bættu regluverki í atvikaskýrslu rannsóknanefndar samgönguslysa vegna slys um borðí bát af þessum toga þar sem farþegi fékk samfallsbrot á hrygg. Benti nefndin á fyrri ábendingar um þörf á bættum öryggisreglum og vísaði til „tíðra slysa“.
Var fjallað um málið 31. maí og fyrirspurn send á innviðaráðuneytið 1. júní, en reglugerðardrögin sem ráðuneytið bendir á í svari sínu voru ekki birt í samráðsgátt fyrr en 7. júní.
„Öryggi er forgangsatriði í stefnumörkun og öllu regluverki um samgöngur. Ráðuneytið tekur því undir sjónarmið rannsóknarnefndarinnar. Áfram verður lögð höfuðáhersla á að tryggja öryggi í siglingum með regluverki á hverjum tíma, þ.m.t. farþega í bátum af þessu tagi. [...] Meðal nýmæla í nýju reglugerðinni eru viðbótarkröfur fyrir háhraðafarþegabáta (RIB-báta) og eru þær í viðauka VI. Þessar reglur eru lagðar til m.a. í ljósi ályktana rannsóknarnefndar samgönguslysa,“ segir í svarinu.
Rannsóknanefnd samgönguslysa hefur rætt um „tíð slys“. Innviðaráðuneyið upplýsir að alls hafi nefndinni verið tilkynnti um níu slys á farþegum RIB báta frá árinu 2012
Spurt var meðal annars hvers vegna ekki hefðu verið gerðar breytingar á regluverkinu á þeim fjórum árum sem liðin eru frá því að ráðuneytið hét því að móta nýjar kröfur.
„Þegar hafist var handa við að endurskoða regluverk um skip var byrjað á endurskoðun heildarlaga sem gilda um skip. Ný skipalög (nr. 66/2021) tóku gildi 1. júlí 2021. Markmið laganna er að tryggja öryggi íslenskra skipa, áhafna þeirra og farþega, efla varnir gegn mengun frá skipum og tryggja skilvirka skráningu, merkingu, mælingu og eftirlit með skipum. Í framhaldinu var unnið að endurskoðun reglna um smíði, hönnun og búnað skipa með mestu lengd allt að 15 metrum sem nú hefur verið kynnt á samráðsgátt, eins og fyrr segir, með reglum sem innihalda reglur um RIB-báta,“ segir í svarinu.