Lönduðu samningi upp á rúman milljarð

Skaginn 3X mun sjá um vinnslulínu um borð í nýjum …
Skaginn 3X mun sjá um vinnslulínu um borð í nýjum togarar Bluewild í Noregi. f.v. Reynir Ver Jónsson, hönnuður hjá Skaginn 3X, Tore Roaldsnes, CEO hjá BlueWild og Ragnar A. Guðmundsson, sölustjóri hjá Skaganum 3X. Ljósmynd/Skaginn 3X

Skaginn 3X hefur undirritað samning við norsku útgerðina Bluewild um uppsetningu vinnslulínu um borð í hátæknitogara og nemur verðmæti samningsins rúmlega milljarð króna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Skaganum 3X.

„Samningurinn markar tímamót fyrir okkur,“ segir Ragnar A. Guðmundsson, yfirmaður sölumála Skagans 3X fyrir Skandínavíu og Evrópu, í tilkynningunni.

„Við höfum unnið náið með Bluewild teyminu síðastliðin tvö ár. Ótal fundir og tilraunir skiluðu þessum árangri og við höfum þróað nýja og spennandi kerfislausn sem samrýmist virkilega vel stefnu þeirra.“

Ulstein Design & Solutions AS hönnuðu togarann og er hann smíðaður af Westcon skipasmíðastöðinni í Noregi og koma félögin einnig að hönnun og smíði kerfanna um borð, en auk þeirra koma að verkefninu CFlow Systems, PTG og nú Skaginn 3X.

Lifandi fyrir neðan sjólínu

Togaranum er lýst sem „byltingakenndum“ í tilkynningunni og er meðal annars bent á að aflinn er fluttur beint í vatnsfyllta birgðatanka fyrir neðan sjólínu þegar hann kemur um borð, þar sem hann er geymdur lifandi áður en hann er fluttur í vinnslu.

„Aflinn er færður á efra verksmiðjudekkið með yfirþrýstingslosun sem kemur í veg fyrir hið dæmigerða tjón sem getur orðið við notkun annars konar dælingar. Vinnslukerfi Skaginn 3X tekur þar við og mun vinna fiskinn í flök og bita. Einnig verður heildstæð rækjulína um borð sem mun vinna soðna og lausfrysta rækju sem og frysta iðnaðarrækju til frekari framleiðslu í landi.“

Nýr togari Bluewild í Noregi mun geyma lifandi fisk í …
Nýr togari Bluewild í Noregi mun geyma lifandi fisk í vatnsfylltum birgðatönkum. Ljósmynd/Skaginn 3X

Hugmyndafræðin á bak við togarann er nefnd ECOFIVE og er hugsuð sem leið til að framleiða vörur í hæsta gæðaflokki með sem minnstum orkukostnaði og er verkefnið tilnefnt til nýsköpunarverðlauna Nor-Fishing Foundation 2022.

„Það er ótrúlegt tækifæri að vera valinn til að afhenda lausn í nýsköpunarverkefni eins og ECOFIVE,“ segir Ragnar. „ Kerfislausn okkar fellur ótrúlega vel að kröfum kúnnans um sjálfbærar veiðar, hámarks nýtingu og aukið verðmæti bæði afurða og aukaafurða.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »