Sigurður Garðarsson, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs, sem rekur Hrafnistuheimilin, hefur látið af störfum. Stjórn Sjómannadagsráðs féllst á beiðni Sigurðar þess efnis fyrr í dag og tóku starfslokin þegar gildi, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Þar segir að honum hafi verið „færðar þakkir fyrir farsælt starf um langt árabil við stjórnvöl þeirrar umfangsmiklu starfsemi sem SDR stendur fyrir, einkum á sviði uppbyggingar hjúkrunarheimila Hrafnistu og reksturs eigna Sjómannadagsráðs og leiguíbúða Naustavarar. Eru Sigurði færðar bestu óskir um velgengni í nýjum viðfangsefnum sínum“.
Rétti tímapunkturinn
Þá hefur Aríel Pétursson, formaður stjórnar Sjómannadagsráðs, tekið hlutverki Sigurðar í daglegum rekstri þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn.
„Ég kveð þennan vinnustað og framúrskarandi samstarfsfólk á liðnum árum með söknuði en er jafnframt sannfærður um að þetta er rétti tímapunkturinn til þess að söðla um og beina þeirri reynslu og þekkingu sem ég hef öðlast, í nýja farvegi á nýjum slóðum sem mig langar að feta. Sjómannadagsráð sinnir gríðarlega mikilvægu starfi í íslensku samfélagi og ég lít stoltur um öxl yfir farinn veg í stjórnunarhlutverki á því sviði,“ er haft eftir Sigurði í tilkynningunni.
Starfsemi í fimm sveitarfélögum
„Það eru miklar nýjar áskoranir í verkefnum okkar og með nýju fólki koma eins og alltaf nýjar hugmyndir og áherslur. Við bjóðum þær einfaldlega velkomnar um leið og við þökkum Sigurði hans vel unnu störf fyrir Sjómannadagsráð í þágu okkar og aldraðs fólks á Íslandi,“ segir Aríel.
Sjómannadagsráð rekur starfsemi sína á ríflega 100 þúsund fermetrum í fimm sveitarfélögum.
Íbúar á Hrafnistuheimilunum eru um 800 talsins auk um 350 annarra íbúa í leiguíbúðum SDR og talsverðs fólks í eigin íbúðum í nágrenni þjónustukjarnanna. Félagið veitir um 1.700 manns atvinnu og veltir ríflega 13 milljörðum króna á ári.