Geo Salmo hefur undirritað samning við norska fyrirtækið Artec Aqua um hönnun og uppbyggingu laxeldisstöðvar sinnar á landi í Ölfusi, vestan Þorlákshafnar og er heildarverðmæti samningsins á bilinu 21 til 25 milljarða króna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Þar segir að samningurinn nái til hönnun, búnað og sjálfa uppbyggingu fyrsta áfanga landeldisstöðvarinnar sem áætlað er að framleiði 7.300 tonn af heilum laxi á ári. Stefnt er að því að fullbyggð stöð geti framleitt um 20 þúsund tonn árlega.
Eldisstöð Geo Salmo í Ölfusi mun nýta hreinan sjó úr jörðu sem sagður er henta afar vel til laxeldis. Þá verður stöðin með hátæknibúnað til að stýra hitastigi og vatnsgæðum sem á að tryggja hagstæð vaxtarskilyrði og velferð fisksins í aðstæðum sem endurspegla eiga náttúrulegt umhverfi hans. Þá verða öll ker yfirbyggð sem á að skila aukinni stjórn á eldisferlinu.
Undirbúningshönnun Artec Aqua er þegar hafin, en framkvæmdir hefjast samkvæmt áætlun haustið 2023 og er stefnt að því að fá að verkefninu fjölmarga íslenska verktaka og þjónustuaðila. „Þannig byggist upp ný þekking og reynsla á Íslandi sem getur nýst þeirri ört vaxandi atvinnugrein sem landeldi á laxi stefnir á að verða á næstu árum hér á landi,“ segir í tilkynningunni.
„Okkur er einstök ánægja að hefja samstarf við Artec Aqua um uppbyggingu Geo Salmo. Þau hafa tryggt stöðu sína sem leiðtogi á heimsvísu í landeldi á fiski og hafa sýnt einstaka getu til þess að mæta og fara fram úr væntingum við uppbyggingu verkefna sinna. Samspil þekkingar, reynslu og yfirburðatækni Artec Aqua réðu úrslitum um val okkar á heildarbirgja fyrir verkefnið. Samstarfið mun tryggja árangur í vegferð okkar að eldi á laxi í hæsta gæðaflokki sem einnig verður meðal umhverfisvænustu matvæla,“ segir Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri Geo Salmo.
„Við unnum forhönnunarverkefni með Geo Salmo í vor á þessu ári og erum afar ánægð með að halda áfram góðu samstarfi með þessu gríðaröfluga teymi. Verkefnið er afar spennandi þar sem það sameinar blandaða gegnumstreymistækni okkar og einstakar aðstæður á Íslandi þar sem afla má saltvatns sem hefur síast náttúrulega gegnum hraungrýti. Val á okkur sem samstarfsaðila í þessu viðamikla verkefni er staðfesting á sterku orðspori Artec Aqua við uppbyggingu landeldisstöðva og einstakri hæfni okkar teymis,“ segir Ingegjerd Eidsvik, framkvæmdastjóri Artec Aqua.