„Kallar „mayday“ og um leið er virkjuð þyrlusveit“

Að mati Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslu Íslands, hefðu björgunaraðgerðir í morgun ekki getað gengið mikið betur. Vélarvana fiskibát var bjargað rétt utan við Keflavík um hálf tíu í morgun. Hann hafði þá rekið upp að bergi norður af smábátahöfninni í Reykjanesbæ.

Hér fyrir ofan er hægt að sjá myndskeið frá Landhelgisgæslunni af björgunaraðgerðunum í dag.

Ásgeir segir að björgunin hafi gengið eins vel og hægt var að vona og að samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar hafi ekki orðið alvarlegar skemmdir á bátnum. 

Einn besti viðbragðstími

„Málið hefst á því að skipstjórinn kallar „mayday“ og um leið er virkjuð þyrlusveit á flugvellinum og sjóbjörgunarsveitir og lögreglu,“ segir Ásgeir um upphaf björgunarinnar. 

Eins og greint hefur verið frá tók það aðeins átta mínútur fyrir björgunarsveit Suðurnes að komast á vettvang og hefja björgun eftir að útkallið barst. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig fljót á staðinn en hún var komin tuttugu mínútum eftir að skipstjóri fiskibátsins kallaði eftir hjálp.

Að mati Ásgeirs er þetta einn besti viðbragðstími sem hefur sést. Hann bendir á að ekki hefði mátt líða mikið lengri tími áður en að brugðist var við enda var báturinn farinn að nuddast við klettana og því hætta á ferðum fyrir skip og skipstjóra.

Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Gekk allt eins og í sögu

„Þetta gekk í rauninni allt eins og í sögu. Við þessar aðstæður skiptir viðbragðstíminn öllu máli. Það getur verið mjög hættulegt þegar svona er og sérstaklega þegar skipið er komið upp við kletta, þá skiptir hver mínúta máli.“

Hann segir það mjög lukkulegt að áhöfn þyrlunnar hafi verið að undirbúa æfingarflug þegar að útkallið barst. Vegna þessa þurfti áhöfnin bara að klæða sig í sjóbjörgunargalla áður en að þau gátu lagt af stað á vettvang.

Hann segir þó að þyrlan hafi ekkert þurft að grípa inn í á meðan á björgun stóð og hafi svifið yfir til öryggis. Hann ítrekar mikilvægi þess að allt hafi gengið vel enda var þó nokkur hætta á ferðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »