Þyrlan kölluð út á mesta forgangi

Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá skipstjóra lítils fiskibáts sem sendi út neyðarkall laust eftir klukkan níu í morgun. Báturinn var þá vélarvana rétt utan við Keflavík og var við það að reka upp í bergið í norður af smábátahöfninni í Reykjanesbæ. Einn var um borð.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á mesta forgangi en áhöfn þyrlunnar var að undirbúa æfingarflug og gat brugðist skjótt við og hélt þegar af stað á vettvang, að því er Gæslan greinir frá í tilkynningu.

Sjóbjörgunarsveitir á Suðurnesjum, á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, voru jafnframt kallaðar út sem og lögregla. Skipstjóri báts sem var staddur í nágrenninu var einnig beðinn um að halda á staðinn. Klukkan 9:30, einungis rúmum tuttugu mínútum eftir að neyðarkallið barst, voru björgunarsveitir komnar með bátinn í tog. Á meðan var þyrla Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu á vettvangi ef á þyrfti að halda, segir ennfremur. 

Björgunarsveitir héldu með bátinn í höfnina í Reykjanesbæ en viðbragð allra sem að málinu komu var snöggt og fumlaust. Enginn leki virðist hafa komið að bátnum þrátt fyrir að hann hafi nuddast utan í bergið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »