Línubáturinn Særif SH-702, sem nú heitir Úranía SH-702, er sögð hafa borið til hafnar meira en fimmfalt það magn sem skráð var í stakri veiðiferð í janúar. Báturinn var sviptur leyfi til veiða í atvinnuskyni í tvær vikur í spetmeber vegna vanskila og ónákvæmrar skráningar á aflaupplýsingum, að því er fram kemur á vef Fiskistofu.
Þar segir að Fiskistofu hafi ekki borist rafrænar sendingar aflaupplýsinga á tilskildum tíma frá umræddu fiskiskipi fyrir landanir í þrígang í janúar 2022. Auk þess hafi verið umtalsverður munur verið á uppgefnu aflamagni og raunaflamagni í veiðiferð 26. janúar. Í þeirri veiðiferð var uppgefinn afli 3,1 tonn en reyndist vera 19,7 tonn. „Raunafli var því rúmlega fimmfaldur af uppgefnum heildar afla og munurinn því verulegur.“
Miðað við meðalverð á mörkuðum 26. janúar síðastliðinn má áætla að verðmæti aflans hafi verið um 8,5 milljónir króna og meðalverð aflans sem uppgefinn var (óháð tegund) hafi verið um 1,3 milljónir.
Telur Fiskistofa að við meðferð málsins hafi sannast að skipstjóri sinnti ekki skyldu til aflaskráningar í afladagbók samræmi við gildandi reglugerð. „Viðurlög í málinu voru ákveðin með hliðsjón af ítrekunaráhrifum fyrri áminningar, frá 11. janúar 2022, vegna samkynja brots. Í aðdraganda áminningar hafði málsaðila verið leiðbeint um þá misbresti sem höfðu áður verið á skilum rafrænnar afladagbókar og honum leiðbeint um þá skyldu sem hvílir á skipstjóra á grundvelli fyrrnefndrar reglugerðar.“
Veiðileyfissviptingin tók gildi frá og með 1. september 2022 og til og með 14. september. Ákvörðunin hefur ítrekunaráhrif í tvö ár frá og með dagsetningu hennar.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 7.2.25 | 606,34 kr/kg |
Þorskur, slægður | 7.2.25 | 509,42 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 7.2.25 | 460,29 kr/kg |
Ýsa, slægð | 7.2.25 | 248,47 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 7.2.25 | 247,20 kr/kg |
Ufsi, slægður | 7.2.25 | 303,57 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 7.2.25 | 380,21 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
8.2.25 Háey I ÞH 295 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.013 kg |
Hlýri | 517 kg |
Keila | 259 kg |
Ýsa | 228 kg |
Steinbítur | 131 kg |
Karfi | 25 kg |
Ufsi | 20 kg |
Langa | 5 kg |
Samtals | 2.198 kg |
8.2.25 Sólrún EA 151 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.213 kg |
Ýsa | 362 kg |
Ufsi | 280 kg |
Steinbítur | 241 kg |
Keila | 98 kg |
Hlýri | 53 kg |
Samtals | 6.247 kg |
8.2.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 11.567 kg |
Ýsa | 2.811 kg |
Steinbítur | 1.169 kg |
Hlýri | 61 kg |
Langa | 6 kg |
Samtals | 15.614 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 7.2.25 | 606,34 kr/kg |
Þorskur, slægður | 7.2.25 | 509,42 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 7.2.25 | 460,29 kr/kg |
Ýsa, slægð | 7.2.25 | 248,47 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 7.2.25 | 247,20 kr/kg |
Ufsi, slægður | 7.2.25 | 303,57 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Gullkarfi | 7.2.25 | 380,21 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
8.2.25 Háey I ÞH 295 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.013 kg |
Hlýri | 517 kg |
Keila | 259 kg |
Ýsa | 228 kg |
Steinbítur | 131 kg |
Karfi | 25 kg |
Ufsi | 20 kg |
Langa | 5 kg |
Samtals | 2.198 kg |
8.2.25 Sólrún EA 151 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.213 kg |
Ýsa | 362 kg |
Ufsi | 280 kg |
Steinbítur | 241 kg |
Keila | 98 kg |
Hlýri | 53 kg |
Samtals | 6.247 kg |
8.2.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 11.567 kg |
Ýsa | 2.811 kg |
Steinbítur | 1.169 kg |
Hlýri | 61 kg |
Langa | 6 kg |
Samtals | 15.614 kg |