Féll fyrir borð og drukknaði

Eftir að báturinn fannst mannlaus við Engey í janúar hófst …
Eftir að báturinn fannst mannlaus við Engey í janúar hófst leit að skipverjanum sem fannst látinn skömmu síðar. mbl.is/Eggert

Skipverji sem leitað var að eftir að bátur hans fannst mannlaus við Engey út af Reykjavík í janúar, hafði fallið frá borði og drukknað. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar samgönguslysa. Í skýrslu nefndarinnar segir að krufning hafi leitt í ljós að hann hafi verið undir áhrifum.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst klukkan 10.37 þann 26. janúar ábending um að bátur væri hugsanlega strandaður við Engey, en engar upplýsingar voru í kerfum Landhelgisgæslunnar þess efnis að bátur hefði farið á sjó. Við athugun kom í ljós að bátur væri við Engey og talið að einn væri um borð. Þegar björgunarbáturinn Gróa Pétursdóttir mætti á staðinn fannst báturinn hins vegar mannlaus og við það hófst umfangsmikil leit að skipverjanum.

Leit lauk síðan um hálf tvö síðdegis, skömmu eftir að staðfest var að lík sem fannst við Sólfarið sama dag hafi verið skipverjans.

Í skýrslu nefndarinnar segir að skipverjinn tilkynnti ekki brottför til Vaktstöðvar siglinga (VSS) og að báturinn hafi ekki komið inn í ferilvöktun hjá VSS þar sem ekki var kveikt á sjálfvirka staðsetningarbúnaði bátsins.

„Við skoðun á strandstað kom í ljós að straumur var á rafkerfi bátsins en vél var ekki í gangi. Eldsneytisgjöf var lítillega í áframstöðu og samankúplað. Hældrifið var brotið undan bátnum og lá undir honum stjórnborðsmegin á strandstað. Skrúfublöðin voru brotin af skrúfuhausnum og landtengikapall bátsins vafinn um skrúfuna,“ segir í skýrslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 7.2.25 606,34 kr/kg
Þorskur, slægður 7.2.25 509,42 kr/kg
Ýsa, óslægð 7.2.25 460,29 kr/kg
Ýsa, slægð 7.2.25 248,47 kr/kg
Ufsi, óslægður 7.2.25 247,20 kr/kg
Ufsi, slægður 7.2.25 303,57 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 7.2.25 380,21 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.2.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 2.783 kg
Þorskur 590 kg
Keila 59 kg
Steinbítur 38 kg
Hlýri 19 kg
Samtals 3.489 kg
8.2.25 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 1.013 kg
Hlýri 517 kg
Keila 259 kg
Ýsa 228 kg
Steinbítur 131 kg
Karfi 25 kg
Ufsi 20 kg
Langa 5 kg
Samtals 2.198 kg
8.2.25 Sólrún EA 151 Lína
Þorskur 5.213 kg
Ýsa 362 kg
Ufsi 280 kg
Steinbítur 241 kg
Keila 98 kg
Hlýri 53 kg
Samtals 6.247 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 7.2.25 606,34 kr/kg
Þorskur, slægður 7.2.25 509,42 kr/kg
Ýsa, óslægð 7.2.25 460,29 kr/kg
Ýsa, slægð 7.2.25 248,47 kr/kg
Ufsi, óslægður 7.2.25 247,20 kr/kg
Ufsi, slægður 7.2.25 303,57 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 7.2.25 380,21 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.2.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 2.783 kg
Þorskur 590 kg
Keila 59 kg
Steinbítur 38 kg
Hlýri 19 kg
Samtals 3.489 kg
8.2.25 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 1.013 kg
Hlýri 517 kg
Keila 259 kg
Ýsa 228 kg
Steinbítur 131 kg
Karfi 25 kg
Ufsi 20 kg
Langa 5 kg
Samtals 2.198 kg
8.2.25 Sólrún EA 151 Lína
Þorskur 5.213 kg
Ýsa 362 kg
Ufsi 280 kg
Steinbítur 241 kg
Keila 98 kg
Hlýri 53 kg
Samtals 6.247 kg

Skoða allar landanir »