Sigldu jafn langt og til Tenerife og til baka

Breki tók þátt í haustralli Hafrannsóknastofnunar annað árið í röð …
Breki tók þátt í haustralli Hafrannsóknastofnunar annað árið í röð og sigldi 3.300 sjómílur. Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson

Breki VE hélt til Vestmannaeyja í síðustu viku að lokinni þátttöku í haustralli Hafrannsóknastofnunar. Breki VE hafði þá lagt að baki 528 klukkustunda siglingu og 3.300 sjómílur, en haustrallið hófst 30. september.

Hafrannsóknastofnun tók skipið á leigu annað árið í röð vegna haustrallsins, að því er fram kemur í færslu á vef Vinnslustöðvarinnar sem gerir skipið út. Þar segir jafnframt að veiðarfærum og áhöfn hafi verið skilað í land í Hafnarfirði, en fjórir urðu eftir um borð til að sigla skipinu til heimahafnar.

Þvers og kruss

„Við sigldum þvers og kruss, fram og til baka, út og suður, í fiskveiðilögsögunni hringinn í kringum landið. Þessar 3.300 sjómílur svara til siglingar frá Vestmannaeyjum til Miami á Flórída eða frá Eyjum til Tenerife og aftur til baka! Við hefðum svo sem þegið ögn af sól og blíðu sem gjarnan ríkir á Tenerife og í Flórída en vorum ekki sólarmegin í lífinu í þetta sinn heldur í leiðindaveðri stóran hluta tímans,“ segir Magnús Ríkarðsson, skipstjóri á Breka, í færslunni.

„Við toguðum á 155 fyrirfram ákveðnum stöðvum á djúpslóð í lögsögunni. Stundum á hátt í þúsund metra dýpi sem svarar til meira en þrefaldrar hæðar Heimakletts okkar Eyjamanna. Aflinn var samtals um 50 tonn sem landað var á Eskifirði, Dalvík og í Hafnarfirði,“ segir hann.

Leið Breka umhverfis Ísland á haustralli 2022.
Leið Breka umhverfis Ísland á haustralli 2022. Mynd/VSV

„Magnús skipstjóri er hundrað prósenta maður“

„Breki er frábært skip og áhöfnin sömuleiðis. Magnús skipstjóri er hundrað prósenta maður, vandvirkur, nákvæmur og leggur sig fram um að skila verkefninu eins vel og framast er unnt. Fyrir okkur starfsmenn Hafró er gulls í gildi að vinna með fólki sem er umhugað um að skila góðu verki,“ er haft eftir Klöru Björgu Jakobsdóttur, líffræðingi, í færslunni.

Klara Björg var verkefnisstjóri haustrallsins að þessu sinni og leiðangursstjóri um borð í Breka í fyrri hluta rallsins, en líffræðingurinn Hlynur Pétursson var leiðangursstjóri í síðari hlutanum.

„Við fórum eins að nú og í fyrra, slepptum stöðvum þar sem dýpi er yfir þúsund metrum og tökum þær með rannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni. Árni er eina skipið í íslenska flotanum sem ræður til dæmis við að toga á allt að 1.300 metra dýpi vestur af landinu til að afla upplýsinga um djúpsjávartegundir, einkum grálúðu og karfa. Breki ræður við að toga á upp undir þúsund metra dýpi og með því að nota Árna Friðriksson á dýpri stöðvum blessast rallið í heildina tekið,“ segir Klara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.2.25 580,94 kr/kg
Þorskur, slægður 10.2.25 616,81 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.2.25 420,36 kr/kg
Ýsa, slægð 10.2.25 339,87 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.2.25 223,23 kr/kg
Ufsi, slægður 10.2.25 301,85 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 10.2.25 395,66 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.2.25 Fjóla SH 7 Plógur
Ígulker Hvf C 1.400 kg
Samtals 1.400 kg
11.2.25 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Þorskur 2.107 kg
Steinbítur 836 kg
Ýsa 822 kg
Samtals 3.765 kg
11.2.25 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet
Þorskur 2.188 kg
Grásleppa 28 kg
Ýsa 18 kg
Karfi 16 kg
Skarkoli 5 kg
Samtals 2.255 kg
11.2.25 Gullver NS 12 Botnvarpa
Þorskur 22.282 kg
Ýsa 18.138 kg
Karfi 7.239 kg
Samtals 47.659 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.2.25 580,94 kr/kg
Þorskur, slægður 10.2.25 616,81 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.2.25 420,36 kr/kg
Ýsa, slægð 10.2.25 339,87 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.2.25 223,23 kr/kg
Ufsi, slægður 10.2.25 301,85 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 10.2.25 395,66 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.2.25 Fjóla SH 7 Plógur
Ígulker Hvf C 1.400 kg
Samtals 1.400 kg
11.2.25 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Þorskur 2.107 kg
Steinbítur 836 kg
Ýsa 822 kg
Samtals 3.765 kg
11.2.25 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet
Þorskur 2.188 kg
Grásleppa 28 kg
Ýsa 18 kg
Karfi 16 kg
Skarkoli 5 kg
Samtals 2.255 kg
11.2.25 Gullver NS 12 Botnvarpa
Þorskur 22.282 kg
Ýsa 18.138 kg
Karfi 7.239 kg
Samtals 47.659 kg

Skoða allar landanir »