Koma í veg fyrir samþjöppun í íslensku laxeldi

Laxeldi Mowi í Beitveitnes í Noregi.
Laxeldi Mowi í Beitveitnes í Noregi. Ljósmynd/Mowi

Samkeppniseftirlitið hefur veitt undanþágu til framkvæmdar samruna norsku fyrirtækjanna Salmar og NTS með skilyrðum sem fela í sér að dótturfyrirtækið Arctic Fish verði selt frá hinu sameinaða fyrirtæki.

Norsku fyrirtækin óskuðu eftir þessu, þrátt fyrir yfirstandandi rannsókn, á þeim grundvelli að um væri að ræða yfirtökutilboð samkvæmt norskum lögum. Samkvæmt því yrðu aðilar að ganga frá viðskiptunum á næstu dögum. 

Einn af fylgifiskum samrunans hefði verið að Arnarlax og Arctic Fish, sem starfrækja sjókvíaeldi á Vestfjörðum, færu undir yfirráð eins aðila. Fyrirtækin ráða samanlagt yfir um tæpum helming af framleiðslugetu miðað við útgefin leyfi fyrir sjókvíaeldi á Íslandi.

Þar sem viðskiptin varða að hluta til íslenska vörumarkaði sem falla utan gildissviðs EES-samningsins var samruninn líka tilkynntur til Samkeppniseftirlitsins, að því er kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

Myndi leiða til röskunar á samkeppni

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins greindi frá því í gær að rannsókn hennar á samruna Salmar og NTS væri að ljúka með skilyrðum um að Arctic Fish verði selt til frá hinu sameinaða fyrirtæki.

Niðurstaða rannsóknarinnar var að íslenskur eldislax tilheyri sérstökum vörumarkaði. Myndi samruninn að óbreyttu leiða til umtalsverðrar röskunar á samkeppni með því að sameinað fyrirtæki yrði langstærsti framleiðandi að íslenskum laxi inn á EES-svæðið. Að mati framkvæmdastjórnarinnar hefði það leitt til hærra verðs og minni valmöguleika fyrir viðskipti með íslenskan lax. Til að bregðast við þeirri samkeppnisröskun bauðst SalMar til þess að selja frá sér starfsemi NTS hér á landi, nánar tiltekið Arctic Fish, segir einnig í tilkynningunni.

Eftir markaðsprófun á skilyrðunum var komist að þeirri niðurstöðu að þau kæmu í veg fyrir röskun á samkeppni vegna samrunans. Ákvörðunin er háð því að skilyrðin séu virt að fullu.

Ástæða til frekari rannsóknar

„Samruninn var tilkynntur til Samkeppniseftirlitsins með fullnægjandi hætti í sumar. Aflað var sjónarmiða og upplýsinga frá markaðs - og hagaðilum sem gáfu meðal annars tilefni til þess að ætla að markaðshlutdeild aðila á líklegum mörkuðum málsins yrði töluverð. Var samrunaaðilum því tilkynnt að ástæða væri til frekari rannsóknar á samkeppnislegum áhrifum samrunans í lok ágúst,” segir í tilkynningunni.

Stuttu síðar var samruninn tilkynntur framkvæmdastjórn ESB eftir að ítarlegar forviðræður höfðu átt sér stað.

„Fljótlega hófust sáttaviðræður milli samrunaaðila og framkvæmdastjórnarinnar sem lauk með framangreindum hætti. Samkeppniseftirlitið fylgdist með viðræðunum á meðan þeim stóð en eftirlitið yfirfór skilyrði og átti reglulega fundi með framkvæmdastjórninni. Samkeppniseftirlitið mun nú ljúka sinni rannsókn, en skilyrði framkvæmdastjórnarinnar er mikilvæg forsenda fyrir lyktum málsins hér á landi.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 2.7.24 409,00 kr/kg
Þorskur, slægður 2.7.24 485,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 2.7.24 415,58 kr/kg
Ýsa, slægð 2.7.24 435,77 kr/kg
Ufsi, óslægður 2.7.24 161,52 kr/kg
Ufsi, slægður 1.7.24 199,56 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 2.7.24 320,63 kr/kg
Litli karfi 1.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

2.7.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 778 kg
Ufsi 8 kg
Ýsa 1 kg
Samtals 787 kg
2.7.24 Snarfari II AK 117 Handfæri
Þorskur 785 kg
Ufsi 47 kg
Samtals 832 kg
2.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 867 kg
Ufsi 15 kg
Ýsa 5 kg
Karfi 3 kg
Samtals 890 kg
2.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 306 kg
Samtals 306 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 2.7.24 409,00 kr/kg
Þorskur, slægður 2.7.24 485,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 2.7.24 415,58 kr/kg
Ýsa, slægð 2.7.24 435,77 kr/kg
Ufsi, óslægður 2.7.24 161,52 kr/kg
Ufsi, slægður 1.7.24 199,56 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 2.7.24 320,63 kr/kg
Litli karfi 1.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

2.7.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 778 kg
Ufsi 8 kg
Ýsa 1 kg
Samtals 787 kg
2.7.24 Snarfari II AK 117 Handfæri
Þorskur 785 kg
Ufsi 47 kg
Samtals 832 kg
2.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 867 kg
Ufsi 15 kg
Ýsa 5 kg
Karfi 3 kg
Samtals 890 kg
2.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 306 kg
Samtals 306 kg

Skoða allar landanir »