Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að heimila samruna Síldarvinnslunar og Vísis, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Samkeppniseftirlitsins.
Þar segir að niðurstaða stofnunarinnar sé að ekki séu forsendur til íhlutunar í málinu.
„Í fyrri ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins er varða Síldarvinnsluna hefur eftirlitið aflað upplýsinga og sjónarmiða um tengsl Síldarvinnslunnar við Samherja hf. og Gjögur hf./Kjálkanes ehf., en slíkt hefur þýðingu fyrir úrlausn samrunamála. Hafa rannsóknir leitt í ljós talsverð stjórnunar-, eigna- og viðskiptatengsl milli framangreindra aðila sem fela í sér vísbendingar um að stofnast hafi til yfirráða í Síldarvinnslunni umfram það sem áður hefur verið greint frá í tilkynningum um samruna.“
Þá segir að þær upplýsingar sem fyrir liggja í þessu samrunamáli gefa áfram til kynna eigna-, stjórnunar- og viðskiptatengsl milli Síldarvinnslunnar, Samherja og Gjögur/Kjálkanes.
Því voru samkeppnisleg áhrif samrunans tekin til athugunar út frá tveimur sjónarhornum, annars vegar miðað við samrunann eins og hann var tilkynntur eftirlitinu og hins vegar miðað við möguleg sameiginleg yfirráð Samherja og tengdra félaga yfir Síldarvinnslunni.
„Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekki séu forsendur til íhlutunar, hvort sem litið er til hinna þrengri eða víðtækari yfirráða. Þannig eru ekki forsendur til þess að ætla að markaðsráðandi staða sé að myndast eða styrkjast, auk þess sem breyting á samþjöppun vegna kaupa á Vísi er undir þeim viðmiðum sem stuðst er við í evrópskum samkeppnisrétti. Þá gefa fyrirliggjandi gögn ekki til kynna að samkeppni raskist að öðru leyti,“ segir í tilkynningunni.
Það er svo verkefni Fiskistofu að fylgja eftir að farið sé að ákvæðum fiskveiðistjórnunarlaga um hámarks aflahlutdeild.
Í tilefni af málinu hefur Samkeppniseftirlitið átt fund með Fiskistofu og gert henni grein fyrir vísbendingum um víðtækari yfirráð. Mun eftirlitið veita Fiskistofu frekari upplýsingar, ef nauðsynlegt þykir.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 2.7.24 | 409,00 kr/kg |
Þorskur, slægður | 2.7.24 | 485,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 2.7.24 | 415,58 kr/kg |
Ýsa, slægð | 2.7.24 | 435,77 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 2.7.24 | 161,52 kr/kg |
Ufsi, slægður | 1.7.24 | 199,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 2.7.24 | 320,63 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
2.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.766 kg |
Langa | 967 kg |
Keila | 545 kg |
Ýsa | 482 kg |
Hlýri | 385 kg |
Steinbítur | 119 kg |
Ufsi | 82 kg |
Karfi | 33 kg |
Samtals | 8.379 kg |
2.7.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 778 kg |
Ufsi | 8 kg |
Ýsa | 1 kg |
Samtals | 787 kg |
2.7.24 Snarfari II AK 117 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 785 kg |
Ufsi | 47 kg |
Samtals | 832 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 2.7.24 | 409,00 kr/kg |
Þorskur, slægður | 2.7.24 | 485,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 2.7.24 | 415,58 kr/kg |
Ýsa, slægð | 2.7.24 | 435,77 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 2.7.24 | 161,52 kr/kg |
Ufsi, slægður | 1.7.24 | 199,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 2.7.24 | 320,63 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
2.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.766 kg |
Langa | 967 kg |
Keila | 545 kg |
Ýsa | 482 kg |
Hlýri | 385 kg |
Steinbítur | 119 kg |
Ufsi | 82 kg |
Karfi | 33 kg |
Samtals | 8.379 kg |
2.7.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 778 kg |
Ufsi | 8 kg |
Ýsa | 1 kg |
Samtals | 787 kg |
2.7.24 Snarfari II AK 117 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 785 kg |
Ufsi | 47 kg |
Samtals | 832 kg |