Leitinni frestað til birtingar

Hluti áhafnar Þórs skimar yfir hafflötinn við leitina. Þór siglir …
Hluti áhafnar Þórs skimar yfir hafflötinn við leitina. Þór siglir inn Stakksfjörð í kvöld en snýr til baka og heldur leit áfram í birtingu. Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands

„Leitinni hefur verið frestað þar til í birtingu í fyrramálið,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslu Íslands, um stöðu mála við leit að sjómanninum sem féll útbyrðis af línuskipinu Sighvati GK-57 um helgina.

Varðskipið Þór hefur verið við leit í dag ásamt björgunarskipinu Oddi V. Gíslasyni og þyrlu Landhelgisgæslunnar. Var leitarsvæðið stækkað og leitað í 18 sjómílna radíus frá þeim stað sem miðað er við að maðurinn hafi fallið í sjóinn á.

Öflugur búnaður til leitar

„Við gerum ráð fyrir að halda leit áfram á morgun, Þór heldur inn á Stakksfjörð í kvöld en hefur svo leit á ný í fyrramálið og við tökum svo bara stöðuna á því hvaða einingar verða nýttar við leitina á morgun en ljóst er að það verður að minnsta kosti áhöfnin á Þór,“ segir Ásgeir.

Auk þess að nýta eigin augu og sjónauka er leitað …
Auk þess að nýta eigin augu og sjónauka er leitað á léttabátum varðskipanna svo kanna megi stærri svæði. Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands

Hann segir þyrlur Gæslunnar mjög vel búnar til leitar. „Auðvitað eru menn bara á „útkikkinu“ en öll áhöfnin er líka með mjög öfluga nætursjónauka þegar leitað er að nóttu til auk þess sem þyrlurnar eru búnar öflugum myndavélum,“ útskýrir Ásgeir, „og þetta er allt saman notað eftir atvikum auk þess sem áhafnirnar eru mjög vel þjálfaðar þegar kemur að sjónleit úr lofti.“

Á varðskipinum séu áhafnir meira háðar eigin augum eingöngu en auk þess sé farið á léttabátum frá skipunum og þannig leitað á stærra svæði. „Þarna eru allar leiðir nýttar sem færar eru,“ segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.7.24 426,10 kr/kg
Þorskur, slægður 4.7.24 354,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.7.24 404,98 kr/kg
Ýsa, slægð 4.7.24 362,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.7.24 167,44 kr/kg
Ufsi, slægður 4.7.24 200,81 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 4.7.24 305,50 kr/kg
Litli karfi 1.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.7.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 134 kg
Samtals 134 kg
4.7.24 Margrét GK 33 Lína
Þorskur 4.222 kg
Ýsa 164 kg
Steinbítur 148 kg
Hlýri 132 kg
Karfi 30 kg
Langa 5 kg
Keila 3 kg
Samtals 4.704 kg
4.7.24 Tryggvi Sveins EA 49 Handfæri
Þorskur 777 kg
Ufsi 44 kg
Samtals 821 kg
4.7.24 Sigrún EA 52 Handfæri
Þorskur 779 kg
Samtals 779 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.7.24 426,10 kr/kg
Þorskur, slægður 4.7.24 354,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.7.24 404,98 kr/kg
Ýsa, slægð 4.7.24 362,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.7.24 167,44 kr/kg
Ufsi, slægður 4.7.24 200,81 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 4.7.24 305,50 kr/kg
Litli karfi 1.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.7.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 134 kg
Samtals 134 kg
4.7.24 Margrét GK 33 Lína
Þorskur 4.222 kg
Ýsa 164 kg
Steinbítur 148 kg
Hlýri 132 kg
Karfi 30 kg
Langa 5 kg
Keila 3 kg
Samtals 4.704 kg
4.7.24 Tryggvi Sveins EA 49 Handfæri
Þorskur 777 kg
Ufsi 44 kg
Samtals 821 kg
4.7.24 Sigrún EA 52 Handfæri
Þorskur 779 kg
Samtals 779 kg

Skoða allar landanir »