„Óvanalega viðamikið frávik frá staðreyndum“

Kristinn H. Gunnarsson var þingmaður Vestfjarðakjördæmis og Norðvesturkjördæmis frá 1991 …
Kristinn H. Gunnarsson var þingmaður Vestfjarðakjördæmis og Norðvesturkjördæmis frá 1991 til 2009. mbl.is/Golli

Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður segir í pistli á Bæjarins besta að staðhæfingar fram­kvæmda­stjóra Verndar­sjóðs villtra laxa­stofna um ástand hafsbotnsins í Dýrafirði reynist einfaldlega ósannar þegar opinber gögn séu skoðuð. 

Elvar Örn Friðriksson, fram­kvæmda­stjóri Verndar­sjóðs villtra laxa­stofna, tók sterkt til orða í viðtali á Hringbraut á dögunum þegar hann ræddi um laxeldi í Dýrafirði á Vestfjörðum.  Hafsbotninn í Dýrafirði undir laxeldiskvíunum væri „ein stór bakteríumotta, þar sem ekkert annað þrífst, steindauður botn, úrgangur í fiskunum og fóðurleyfar.“

Kristinn segir „óvanalegt að verða vitni að jafn viðamiklu fráviki frá staðreyndum eins og raunin varð í umræddu Hringbrautarviðtali sem ritstjóri Fréttablaðsins stýrði.“

Svæðin öll fengið hæstu einkunn

Kristinn bendir í pistlinum á að ríkisstofnanir hafi eftirlit með þessum iðnaði og þykir ekki mikið koma til þeirra mynda sem Elvar vísaði til í sínum málflutningi. 

Framkvæmdastjórinn vísaði máli sínu til stuðnings aðeins til mynda sem kajakræðari segist hafa tekið einhvers staðar á Dýrafirði. Ekki hefur verið gefið upp hvar og hvenær þær myndir voru teknar.

Kristinn kýs heldur að skoða hvað Umhverfisstofnun segir um ástand hafsbotnsins undir laxeldiskvíum í Dýrafirði. 

Svo vill til að þessar fullyrðingar framkvæmdastjórans er hægt að staðreyna. Það er lögum samkvæmt fylgst með lífríkinu, ástandi þess fyrir upphaf eldis og breytingum á því meðan á eldi stendur. Á vef Umhverfisstofnunar eru birtar upplýsingar um kröfur og eftirlit ,svo og eftirlitsskýrslur og skýrslur um mælingar og vöktun. Starfsleyfið sjálft er þar einnig aðgengilegt og getur hver sem er kynnt sér það og önnur gögn,“ skrifar Kristinn og hjá honum kemur fram að svæðin þrjú í firðinum hafi öll fengið hæstu einkunn. 

Það er ólíku saman að jafna opinberu eftirliti þar sem skýrslur og önnur gögn eru opinber og öllum aðgengileg og svo leyndardómsfullum myndbrotum,“ skrifar Kristinn einnig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.8.24 460,03 kr/kg
Þorskur, slægður 26.8.24 435,69 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.8.24 214,81 kr/kg
Ýsa, slægð 26.8.24 189,51 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.8.24 197,89 kr/kg
Ufsi, slægður 26.8.24 236,42 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.8.24 196,92 kr/kg
Litli karfi 26.8.24 32,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 26.8.24 246,57 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.8.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.277 kg
Ýsa 1.551 kg
Steinbítur 392 kg
Keila 51 kg
Samtals 5.271 kg
26.8.24 Jökla ST 200 Handfæri
Þorskur 1.120 kg
Samtals 1.120 kg
26.8.24 Geirfugl GK 66 Línutrekt
Steinbítur 455 kg
Ýsa 362 kg
Þorskur 106 kg
Hlýri 20 kg
Karfi 5 kg
Keila 4 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 954 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.8.24 460,03 kr/kg
Þorskur, slægður 26.8.24 435,69 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.8.24 214,81 kr/kg
Ýsa, slægð 26.8.24 189,51 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.8.24 197,89 kr/kg
Ufsi, slægður 26.8.24 236,42 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.8.24 196,92 kr/kg
Litli karfi 26.8.24 32,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 26.8.24 246,57 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.8.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 3.277 kg
Ýsa 1.551 kg
Steinbítur 392 kg
Keila 51 kg
Samtals 5.271 kg
26.8.24 Jökla ST 200 Handfæri
Þorskur 1.120 kg
Samtals 1.120 kg
26.8.24 Geirfugl GK 66 Línutrekt
Steinbítur 455 kg
Ýsa 362 kg
Þorskur 106 kg
Hlýri 20 kg
Karfi 5 kg
Keila 4 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 954 kg

Skoða allar landanir »