Færðu Hafbjörgu dráttartaugar að gjöf

Helgi Ólason, Bjarni Guðmundsson og Hafliði Hinriksson veittu gjöfinni formlega …
Helgi Ólason, Bjarni Guðmundsson og Hafliði Hinriksson veittu gjöfinni formlega viðtöku fyrir hönd björgunarsveitarinnar frá Jóni Einari Marteinssyni, rekstrarstjóra Hampiðjunnar í Neskaupstað. Ljósmynd/Hampiðjan

Hampiðjan hefur fært björgunarsveitinni Gerpi dráttartaugar úr DynIce ofurtógi að gjöf. Dráttataugarnar eru sérhannaðar fyrir björgunarskipið Hafbjörgu í samstarfi áhafnarmeðlimi og sérfræðinga Hampiðjunnar.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hampiðjunni.

Ný Hafbjörg kom til heimahafnar í Neskaupstað sumarið 2021 eftir að hafa verið keypt frá Svíþjóð, en þar bar björgunarskipið nafnið Elsa Johansson og var gert út af sænsku björgunarsamtökunum SSRS. Þá þykir skipið, sem smíðað var 1997, hentugt fyrir þær aðstæður sem skip og áhöfn þarf að sinna hér á landi.

„DYNICE  dráttartaugar frá Hampiðjunni hafa sama slitstyrk og togvírar í sama þvermáli, en eru mun léttari og henta afar vel til dráttar í höfnum, á úthafi og við björgunaraðgerðir á sjó og landi. Hjá Hafbjörgu er DYNICE dráttartaugin 200 metra löng og yfirfléttuð hlífðarkápa yfir allt tógið til að verja fyrir núningi á spilum og við hífingar, auk þess teygjuleggir og samsetningarhraðlásar til að tengja teygjuleggina á einfaldan hátt við aðaltógið.  Verðmæti gjafarinnar er um ein og hálf milljón króna,“ segir í tilkynningunni.

Helgi Ólason, Bjarni Guðmundsson og Hafliði Hinriksson veittu gjöfinni formlega viðtöku fyrir hönd björgunarsveitarinnar frá Jóni Einari Marteinssyni, rekstrarstjóra Hampiðjunnar í Neskaupstað, á dögunum.

Helgi, einn af skipstjórum björgunarskipsins, segir í tilkynningunni alla hönnun miða að því að auðvelda vinnu á dekki og auka öryggi áhafnar og ljóst að um afar mikilvæga gjöf er að ræða sem mun auka sjóbjörgunarhæfni skipsins.

Björgunarskip Norðfirðinga Hafbjörg.
Björgunarskip Norðfirðinga Hafbjörg. Ljósmynd/Hampiðjan
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 8.5.24 424,84 kr/kg
Þorskur, slægður 8.5.24 517,93 kr/kg
Ýsa, óslægð 8.5.24 212,67 kr/kg
Ýsa, slægð 8.5.24 183,64 kr/kg
Ufsi, óslægður 8.5.24 148,35 kr/kg
Ufsi, slægður 8.5.24 132,97 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 8.5.24 208,75 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.5.24 Unginn AK 58 Handfæri
Þorskur 624 kg
Samtals 624 kg
8.5.24 Dadda HF 43 Handfæri
Þorskur 653 kg
Samtals 653 kg
8.5.24 Þytur ST 14 Handfæri
Þorskur 744 kg
Samtals 744 kg
8.5.24 Enok NK 17 Handfæri
Þorskur 521 kg
Samtals 521 kg
8.5.24 Día HF 14 Handfæri
Þorskur 759 kg
Ufsi 51 kg
Samtals 810 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 8.5.24 424,84 kr/kg
Þorskur, slægður 8.5.24 517,93 kr/kg
Ýsa, óslægð 8.5.24 212,67 kr/kg
Ýsa, slægð 8.5.24 183,64 kr/kg
Ufsi, óslægður 8.5.24 148,35 kr/kg
Ufsi, slægður 8.5.24 132,97 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 8.5.24 208,75 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.5.24 Unginn AK 58 Handfæri
Þorskur 624 kg
Samtals 624 kg
8.5.24 Dadda HF 43 Handfæri
Þorskur 653 kg
Samtals 653 kg
8.5.24 Þytur ST 14 Handfæri
Þorskur 744 kg
Samtals 744 kg
8.5.24 Enok NK 17 Handfæri
Þorskur 521 kg
Samtals 521 kg
8.5.24 Día HF 14 Handfæri
Þorskur 759 kg
Ufsi 51 kg
Samtals 810 kg

Skoða allar landanir »