Mikið um laxalús í Dýrafirði

Frá eldi Arctic Fish í Dýrafirði.
Frá eldi Arctic Fish í Dýrafirði. Ljósmynd/Ágúst Atlason

Laxalús hefur tekið að fjölga undanfarin misseri á laxfiskum í sjókvíum á Vestfjörðum. Samkvæmt mælaborði fiskeldis var í nóvember að meðaltali 1,41 kvenlús á hverjum fiski í sjókvíum á Íslandi. Talan er hins vegar mun hærri þar sem lúsin er þar sem hana er alla jafna ekki að finna á Austfjörðum.

Ekki liggja fyrir tölur fyrir landshluta í nóvember en talan fyrir Vestfirði á október er 0,94 kvenlús á fiski. Það er ekki ýkja mikið þar sem áhættumörk í mörgum ríkjum eru 1,5 til 3 fullorðnar lýs á hverjum fiski.

Staðan er hins vegar allt önnur þegar skoðuð er staðan eftir fjörðum og sést að í Dýrafirði voru 3,94 kvenlýs á hverjum fiski í október.

Fjöldi kvenlúsa á fiski í Dýrafirði rauk upp úr öllu …
Fjöldi kvenlúsa á fiski í Dýrafirði rauk upp úr öllu valdi í október. Skjáskot/Mælaborð fiskeldis

Beittu slice

Í bréfi til Ísafjarðarbæjar dagsettu 12. október síðastliðinn tilkynnti Arctic Fish að þörf væri á að meðhöndla gegn laxalús með emamectin benzoate eða svokölluðu „slice“ í kvíastæðum við Hvannadal í Tálknafirði, Kvígindisdal í Patreksfirði og Hvestudal í Arnarfirði. Átti meðhöndlun að vera lokið 21. nóvember.

„Þegar upp koma aðstæður sem þessar sækir Arctic Fish um leyfi til lyfjameðhöndlunar til Matvælastofnunar. Fiskisjúkdómanefnd tekur málið fyrir og metur með tilliti til umhverfisskilyrða, fiskistærðar, stöðu lúsasmita og væntanlegrar þróunar á svæðinu,“ segir í bréfinu.

Umhverfisstofnun sagðist í byrjun árs ætla að skoða umhverfisáhrif notkunar lyfja gegn laxalús hér á landi, þar með talið slice.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.7.24 496,50 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.7.24 315,52 kr/kg
Ýsa, slægð 19.7.24 231,85 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.7.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 16 kg
Steinbítur 13 kg
Samtals 29 kg
20.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 319 kg
Samtals 319 kg
20.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 261 kg
Samtals 261 kg
20.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng
Þorskur 259 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 10 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 289 kg
20.7.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 389 kg
Samtals 389 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.7.24 496,50 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.7.24 315,52 kr/kg
Ýsa, slægð 19.7.24 231,85 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.7.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 16 kg
Steinbítur 13 kg
Samtals 29 kg
20.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 319 kg
Samtals 319 kg
20.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 261 kg
Samtals 261 kg
20.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng
Þorskur 259 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 10 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 289 kg
20.7.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 389 kg
Samtals 389 kg

Skoða allar landanir »