Samstæða norska fiskeldisrisans Mowi, sem festi kaup á meirihluta hlutafjár í vestfirksa fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish í desember, skilaði á síðasta ári jákvæðri rekstrarniðurstöðu fyrir leiðréttingu með tilliti til lífmassa sem nam um milljarð evra sem er jafnvirði um 155 milljarða íslenskra króna. Þetta er besta rekstrarniðurstaða í sögu félagsins.
Þetta má lesa úr bráðabirgðauppgjöri fjórða ársfjórðungs sem fjallað er um á E24.
Mowi greiddi út 724 milljóna norskra króna, rúmlega 10 milljarða íslenskra króna, í arð á síðasta ári í kjölfar þess að met var sett í afkomu félagsins árið 2021 þegar rekstrarniðurstaðan var jákvæð um 523 milljónir evra. Með tilliti til mun betri afkomu má reikna með myndarlegri arðgreiðslu eins og á síðasta ári.
Markaðsvirði Mowi, sem skráð er í kauphöllina í Osló, er nú um 90 milljarða norksra króna sem jafngildir rúmlega 1.300 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar er samanlagt markaðsvirði Síldarvinnslunnar og Brims 405 milljarðar íslenskra króna.
Fram kemur að rekstrarniðurstaðan á fjórða ársfjórðungi hafi numið 239 milljónum evra, jafnvirði 37 milljarða íslenskra króna.
Umfangsmesta laxeldi félagsins er í Noregi þar sem slátrað var 87.000 tonnum á síðasta ársfjórðungi 2022. Á tímabilinu var einnig slátrað 10.500 tonnum úr kvíum félagsins í Skotlandi, 11.000 tonnum í Kanada, 18.500 tonnum í Síle, 500 tonnum á Írlandi og 3.000 tonnum í Færeyjum. Í heild var því framleiðslan 130.500 tonn af laxi á þessum þremur mánuðum sem er tæplega þreföld ársframleiðsla fiskeldisfélaganna hér á landi árið 2021.
Rekstru dótturfélagsins hér á landi er ekki í uppgjörinu en það má rekja til þess að kaupin fóru fram mjög seint á árinu.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.10.24 | 497,07 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.10.24 | 570,02 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.10.24 | 259,27 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.10.24 | 222,79 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.10.24 | 233,08 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.10.24 | 232,43 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.10.24 | 124,11 kr/kg |
Gullkarfi | 18.10.24 | 160,45 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 16.10.24 | 127,54 kr/kg |
18.10.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 6.964 kg |
Þorskur | 1.488 kg |
Skarkoli | 380 kg |
Langlúra | 177 kg |
Sandkoli | 73 kg |
Skrápflúra | 16 kg |
Karfi | 12 kg |
Steinbítur | 10 kg |
Hlýri | 10 kg |
Þykkvalúra | 7 kg |
Samtals | 9.137 kg |
18.10.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 2.147 kg |
Ýsa | 463 kg |
Hlýri | 21 kg |
Steinbítur | 11 kg |
Samtals | 2.642 kg |
18.10.24 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Ýsa | 627 kg |
Þorskur | 495 kg |
Keila | 115 kg |
Hlýri | 6 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 1.249 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.10.24 | 497,07 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.10.24 | 570,02 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.10.24 | 259,27 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.10.24 | 222,79 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.10.24 | 233,08 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.10.24 | 232,43 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.10.24 | 124,11 kr/kg |
Gullkarfi | 18.10.24 | 160,45 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 16.10.24 | 127,54 kr/kg |
18.10.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 6.964 kg |
Þorskur | 1.488 kg |
Skarkoli | 380 kg |
Langlúra | 177 kg |
Sandkoli | 73 kg |
Skrápflúra | 16 kg |
Karfi | 12 kg |
Steinbítur | 10 kg |
Hlýri | 10 kg |
Þykkvalúra | 7 kg |
Samtals | 9.137 kg |
18.10.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 2.147 kg |
Ýsa | 463 kg |
Hlýri | 21 kg |
Steinbítur | 11 kg |
Samtals | 2.642 kg |
18.10.24 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Ýsa | 627 kg |
Þorskur | 495 kg |
Keila | 115 kg |
Hlýri | 6 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 1.249 kg |