Bora 30 sjóholur í Þorlákshöfn

Guðmundur Á. Böðvarsson, framkvæmdastjóri Ræktunarsambandsins (t.v.) og Heimir Ingimarsson, jarðfræðingur …
Guðmundur Á. Böðvarsson, framkvæmdastjóri Ræktunarsambandsins (t.v.) og Heimir Ingimarsson, jarðfræðingur Landeldis (t.h.) við undirritun samningsins. Ljósmynd/Landeldi

Landeldi hf. og Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. hafa skrifað undir verksamning um borun á 30 sjóholum í Þorlákshöfn sem verða allt að 100 metrar á dýpt. Jafnframt er stefnt á borun á ferskvatnsholum og mæli- og vöktunarholum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þar segir að samningurinn tryggir Landeldi hraunsíaðan sjó fyrir allan fyrsta áfanga félagsins, en honum er ætlað að skila 7.300 tonnum af heilum laxi á ári. Fullbyggð landeldisstöð er áætlað að skili 20 þúsund tonna framleiðslu á ári.

Verktíminn vgena sjóholanna er áætlaður 15 mánuðir. Borinn Saga notaður til verksins og verður hafist handa á komandi vikum.

Ræktunarsambandið skuldbindur sig til að fjárfesta í rafmagnspressum og Landeldi til að útvega raforku til verksins. Fullyrt er í tilkynningunni að „með þessu er olíu skipt út fyrir raforku í borverkinu að stórum hluta, sem er nýjung hér á landi í borun á sjóholum. Samningurinn er einn umhverfisvænasti sinnar tegundar og liður í vegferð beggja fyrirtækja að settu markmiði í umhverfismálum.“

Stærsti samningurinn

„Við höfum þegar borað 20 holur fyrir Landeldi síðan 2020 og samstarfið verið bæði gott og lærdómsríkt. Samningurinn er því eðlilegt framhald til að ná fram sem bestum lærdómi og hagræðingu í borverkinu með tilliti til þarfa laxeldisins. Samningurinn er sá stærsti sem Ræktunarsambandið hefur gert við einstakan aðila í borholum hingað til og kallar á aukin umsvif hjá Ræktunarsambandinu með frekari mannaráðningum,“ Guðmundur Á. Böðvarsson, framkvæmdastjóri Ræktunarsambandsins.

„Með þessum samningi tryggir Landeldi sér aðgang að sjó til að rækta um 8 til 10.000 tonn af laxi árlega. Ræktunarsambandið hefur stutt vel við Landeldi síðustu árin og sameiginlega hafa félögin þróað töluverða nýbreytni við hönnun á sjóholum með virkilega góðum árangri. Í þessum stóra samningi munum við færa okkur úr olíudrifnum loftpressum í rafmagns loftpressur sem hefur mikil áhrif á kolefnisfótspor hverrar holu og er það liður í þeirri vegferð Landeldis að velja eins og kostur er umhverfisvænar leiðir í uppbyggingu og rekstri félagsins,“ segir Heimir Ingimarsson, jarðfræðingur Landeldis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.1.25 591,78 kr/kg
Þorskur, slægður 17.1.25 609,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.1.25 380,76 kr/kg
Ýsa, slægð 17.1.25 302,45 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.1.25 189,00 kr/kg
Ufsi, slægður 17.1.25 253,81 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 17.1.25 184,16 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.064 kg
Þorskur 298 kg
Steinbítur 47 kg
Keila 17 kg
Hlýri 15 kg
Samtals 1.441 kg
17.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.767 kg
Ýsa 5.091 kg
Steinbítur 294 kg
Langa 219 kg
Keila 78 kg
Karfi 20 kg
Samtals 14.469 kg
17.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 10.232 kg
Ýsa 1.981 kg
Langa 354 kg
Karfi 37 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 12.630 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.1.25 591,78 kr/kg
Þorskur, slægður 17.1.25 609,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.1.25 380,76 kr/kg
Ýsa, slægð 17.1.25 302,45 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.1.25 189,00 kr/kg
Ufsi, slægður 17.1.25 253,81 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 17.1.25 184,16 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.064 kg
Þorskur 298 kg
Steinbítur 47 kg
Keila 17 kg
Hlýri 15 kg
Samtals 1.441 kg
17.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.767 kg
Ýsa 5.091 kg
Steinbítur 294 kg
Langa 219 kg
Keila 78 kg
Karfi 20 kg
Samtals 14.469 kg
17.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 10.232 kg
Ýsa 1.981 kg
Langa 354 kg
Karfi 37 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 12.630 kg

Skoða allar landanir »

Loka