Lýsi hf. hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Ice Fish ehf. í Sandgerði, að því er fram kemur í tilkynningu. Þar segir að Ice Fish ehf. sé rótgróinn birgir hágæðahráefna úr fiskafurðum sem nýtt séu m.a. í loðdýra- og gæludýrafóður auk manneldis o.fl. Hráefni félagsins sé aðallega unnið úr hvítum fiski eins og þorski, ýsu og flatfiski, auk lax og bleikju. Þá býður Ice Fish einnig upp á fiskhúð til gelatín- og kollagenframleiðslu. Ice fish selur einkum afurðir sínar til Evrópu og Ameríku auk þess sem hluti af afurðunum er seldur til Asíu.
Í tilkynningunni kemur fram að Lýsi hf. sé leiðandi fyrirtæki í vinnslu og sölu á lýsi til manneldis á heimsvísu. Það flytji út afurðir sínar til hátt í 70 landa. Félagið var stofnað 1938 og fagnaði 85 ára afmæli í síðasta mánuði. Félagið rekur enn fremur tvær niðursuðuverksmiðjur sem framleiða afurðir úr lifur, hrognum og öðrum hráefnum sem til falla hjá fiskverkendum og útgerðum. Lýsi rekur verksmiðju í Þorlákshöfn sem þurrkar fiskhausa og -hryggi til útflutnings auk lifrarbræðslu. Félagið nýtir bestu tækni sem völ er á til vinnslunnar og öflug gæðakerfi hafa tryggt því einstaka stöðu á markaði. Ríflega 95% af framleiðsluvörum félagsins fara til útflutnings.
Katrín Pétursdóttir forstjóri Lýsis segir kaupin mikið framfaraskref fyrir bæði fyrirtækin og skjóti m.a. stoðum undir aukið vöruframboð Lýsis.
Ice Fish var í eigu Guðlaugar Birnu Aradóttur framkvæmdastjóra félagsins, Leifs Einars Arasonar fjármálastjóra þess og Rögnu Maríu Aradóttur. Munu Guðlaug Birna og Leifur Einar starfa áfram hjá félaginu í kjölfar kaupanna. Guðlaug Birna segir að í sameinuðu félagi náist betri nýting fyrir það hráefni sem hingað til hefur ekki verið nýtt í starfsemi Ice Fish og skapi ný tækifæri í starfseminni.