Í gærkvöldi sigldi Hannes Þ. Hafstein, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Björgunarsveitarinnar Sigurvonar og Björgunarsveitarinnar Suðurness, frá heimahöfn sinni í Sandgerði í síðasta sinn.
Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu að skipið hafi verið selt til Færeyja þar sem það mun sinna verkefnum sem lóðs og þjónustuskip við hin ýmsu verkefni og kom fjögurra manna áhöfn frá Færeyjum með flugi í gær. Haldið var strax af stað til nýrrar heimahafnar þar sem veðurskilyrði eru talin mjög góð um þessar mundir.
Ekkert björgunarskip verður því staðsett í Sandgerði fram til um það bil 20. mars, en þá er vona á að björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði færist á Suðurnesin. Í stað Sigurvins fá Siglfirðingar nýtt björgunarskip sem er eitt þeirra 13 nýsmíða sem væntanleg eru vegna endurnýjunarverkefnis Landsbjargar.
Fyrsta nýsmíðaða skipið var afhent á síðasta ári og ber nafnið Þór og hefur heimahöfn í Vestmannaeyjum.
„Það var ákveðinn eftirsjá meðal heimamanna í gærkvöldi þegar Hannes Þ. Hafstein lagði úr höfn í Sandgerði í síðasta skipti, en á sama tíma er ákveðinn léttir að eitt elsta björgunarskip sem enn er í notkun í Evrópu hefur nú lokið hlutverki sínu sem útkalls skip, eftir meira en 40 ára þjónustu við sjófarendur við Bretlands- og Íslandsstrendur,“ segir í tilkynningu Landsbjargar.
Hannes Þ. Hafstein var smíðaður 1982 á Englandi og bar upphaflega nafnið The Davina and Charles Matthews Hunter. Var björgunarskipið þá með heimahöfn í Mallaig í Skotlandi þar sem hann þjónaði Konunglegu bresku sjóbjörgunarsamtökunum (RNLI) til ársins 2001.
Skipið kom til Íslands 2003 og var fyrst með heimahöfn í Hafnarfirði og bar þá nafnið Einar Sigurjónsson. Árið 2014 er skipið endurskírt Hannes Þ. Hafstein og fært til Sandgerðis og hefur þjónað þar síðan.
Fram kemur í tilkynningunni að Hannes Þ. Hafstein hafi, frá því að skipið kom til landsins, farið að meðaltali í 8 útköll á hæstu tveimur forgöngum sem boðað er á þessi 20 ár sem skipið hefur þjónustað sjófarendur við Íslandsstrendur. Gera má ráð fyrir að Hannes Þ. Hafstein sé búinn að „fara í að minnsta kosti 160 útköll þar sem nokkuð eða mikið hefur legið við og er það fyrir utan aðrar ferðir og sérþjónustur sem björgunarskipin veita á ársgrundvelli.“