Örlagaskipið Sandey fór í bræðslupottinn

Við Sævarhöfða Sandey II var dregin nokkra metra frá skipalæginu …
Við Sævarhöfða Sandey II var dregin nokkra metra frá skipalæginu þar sem hún var undirbúin fyrir niðurrifið. mbl.is/sisi

Í haust verða liðin 40 ár frá þeim hörmulega atburði þegar sanddæluskipinu Sandey II hvolfdi nálægt Engey, svo að segja við bæjardyr Reykvíkinga. Fjórir skipverjar drukknuðu en tveir úr áhöfninni björguðust, að því er segir í nýlegri umfjöllun Morgunblaðsins um málið.

Sandey var dregin að landi og notuð um árabil sem bryggja og landgönguprammi á athafnasvæði Björgunar við Ártúnshöfða. Fyrir fáum árum lauk því hlutverki og var skipið þá bútað niður og selt utan í brotajárn. Örlagaskipið Sandey II endaði því í bræðslupotti í útlöndum.

Sandey II á hvolfi á slysstað við Engey. Allt tiltækt …
Sandey II á hvolfi á slysstað við Engey. Allt tiltækt björgunarlið kom á vettvang strax eftir slysið. mbl.is/RAX

Sandey II, nýju sanddælu- og dýpkunarskipi, var hleypt af stokkunum hjá Stálsmiðjunni hf. í Reykjavík í maímánuði 1976. Skipið var í eigu Björgunar hf. og var það bvggt upp úr gömlum bandarískum landgöngupramma. Nýsmíði var hins vegar mjög mikil og fór hún að miklu leyti fram hjá Stálsmiðjunni. Sandey II var 48 metra langt skip, það risti 3,5 metra og burðargeta í lest var 920 tonn. Þótti skipið eitt hið fullkomnasta sinnar tegundar og var talið mjög stöðugt í sjó.

Föstudagsmorgunin 28. október 1983 var Sandey II að dæla sandi af hafsbotni við Engey þegar skipinu hvolfdi skyndilega. Vitni voru að atburðinum á landi og létu þau strax vita hvað gerst hafði. Tilkynning um slysið barst Slysavarnafélagi Íslands klukkan 9.02. Þegar voru gerðar ráðstafanir til að senda fjölmennt björgunarlið á staðinn.

Fjallað var um málið í Morgunblaðið á dögunum og má lesa umfjöllunina í heild hér.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg
26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 372 kg
Samtals 372 kg
27.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 239 kg
Samtals 239 kg
26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg

Skoða allar landanir »