Ársfundur samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) verður haldin í Hörpu í dag klukkan 13. Að sögn Heiðrúnar Lind Marteinsdóttur framkvæmdastjóra SFS verður lögð áhersla á framtíð sjávarútvegsins, en SFS telur verðmætasköpun sjávarauðlindarinnar geta tvöfaldast á næstu 10 árum.
Heiðrún segir marga þætti koma að aukinni verðmætasköpun í sjávarútvegi.
„Við teljum hægt að auka magnið, bæta nýtingu og vinnslu. Auka átak í markaðsmálum og bæta aðgengi að mörkuðum, og síðan er auðvitað kannski þar sem stóra vaxtartækifærið liggur, það er í eldi, bæði á sjó og í landi.“
Hún segir ef allt gangi að óskum ætti SFS að geta tvöfaldað verðmætasköpun á næstu 10 árum.
Heiðrún segir meðal annars mikilvægt að bæta hafrannsóknir en erindi Marty Odlin, framkvæmdastjóra fyrirtækisins Running Tide, snýr að heilsu hafsins, hafrannsóknum og bættu aðgengi að gögnum.
„Ef að við leggjum minna í hafrannsóknir þá vöktum við minna og óvissan verður meiri“ segir Heiðrún. „Það er allra tap“ segir hún og bætir við að með auknum hafrannsóknum sé hægt að ná meira magni úr sjó.
Markaðssetning þorsksins verður einnig til umræðu á fundinum en Mark Ritson, vörumerkjaráðgjafi, verður með ávarp titlað „Getur íslenski þorskurinn orðið næsta Gucci?“ sem fjallar um hvernig megi gera íslenska þorskinn að hágæðavöru sem neytandinn er tilbúin að greiða enn meira fyrir á alþjóðamarkaði.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og ráðherra sjávarútvegsmála verður einnig með ávarp á fundinum. Þar stiklar hún á stóru um framvindu í sjávarútvegsmálum á þeim tíma sem hún hefur gegnt embættinu, meðal annars í verkefninu Auðlindin okkar, sem hefur það að markmiði að stuðla að hagkvæmri og sjálfbærri nýtingu auðlinda, sem sé í sátt við umhverfi og samfélag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 14.1.25 | 574,04 kr/kg |
Þorskur, slægður | 14.1.25 | 663,69 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 14.1.25 | 381,89 kr/kg |
Ýsa, slægð | 14.1.25 | 233,77 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 14.1.25 | 186,12 kr/kg |
Ufsi, slægður | 14.1.25 | 218,13 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 14.1.25 | 21,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 14.1.25 | 220,62 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
14.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Ýsa | 877 kg |
Karfi | 138 kg |
Steinbítur | 114 kg |
Langa | 110 kg |
Hlýri | 43 kg |
Þorskur | 42 kg |
Keila | 22 kg |
Samtals | 1.346 kg |
14.1.25 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.502 kg |
Ýsa | 626 kg |
Steinbítur | 45 kg |
Hlýri | 23 kg |
Samtals | 2.196 kg |
14.1.25 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 1.236 kg |
Ýsa | 237 kg |
Þorskur | 54 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Sandkoli | 9 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Samtals | 1.593 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 14.1.25 | 574,04 kr/kg |
Þorskur, slægður | 14.1.25 | 663,69 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 14.1.25 | 381,89 kr/kg |
Ýsa, slægð | 14.1.25 | 233,77 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 14.1.25 | 186,12 kr/kg |
Ufsi, slægður | 14.1.25 | 218,13 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 14.1.25 | 21,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 14.1.25 | 220,62 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
14.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
---|---|
Ýsa | 877 kg |
Karfi | 138 kg |
Steinbítur | 114 kg |
Langa | 110 kg |
Hlýri | 43 kg |
Þorskur | 42 kg |
Keila | 22 kg |
Samtals | 1.346 kg |
14.1.25 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.502 kg |
Ýsa | 626 kg |
Steinbítur | 45 kg |
Hlýri | 23 kg |
Samtals | 2.196 kg |
14.1.25 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 1.236 kg |
Ýsa | 237 kg |
Þorskur | 54 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Sandkoli | 9 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Samtals | 1.593 kg |