Stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) var kjörin á aðalfundi samtakanna í Hörpu í morgun.
Ólafur Helgi Marteinsson, framkvæmdastjóri Rammi hf. veður áfram formaður stjórnar SFS, en hann hefur gegnt formennsku stjórnarinnar síðan 2020, þegar hann tók við af Jens Garðari Helgasyni.
Stjórnarmenn eru:
- Aðalsteinn Ingólfsson, forstjóri Skinneyjar - Þinganess hf.
- Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Gjögurs hf.
- Bergur Þór Eggertsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Nesfisks ehf.
- Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood International hf.
- Daði Hjálmarsson, framkvæmdastjóri KG Fiskverkunar hf.
- Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri FISK-Seafood ehf.
- Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf.
- Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Guðmundar Runólfssonar hf.
- Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf.
- Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf.
- Hákon Þröstur Guðmundsson, útgerðarstjóri Samherja Íslandi ehf.
- Heiðar Hrafn Eiríksson, aðalbókari Þorbjörns hf.
- Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Fiskeldis Austfjarða hf. og Laxa fiskeldis ehf.
- Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis hf.
- Kristján G. Jóakimsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf.
- Linda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Bacco Seaproducts ehf.
- Rögnvaldur Ólafsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands hf.
- Viðar Elíasson, framkvæmdastjóri Narfa ehf
Ársfundur SFS fer einnig fram í Hörpu í dag klukka 13.