Skipar starfshóp um verndun hafsvæða

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur skipað starfshóp til að rýna í …
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur skipað starfshóp til að rýna í verndun hafsvæða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað starfshóp sem ætlað er að skilgreina áherslur um verndun hafsvæða innan íslenskrar lögsögu til samræmis við markmið alþjóðasamninga, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Þar segir að hlutverk hópsins verði að rýna stjórnkerfi verndunar og nýtingar hafsins og að áhersla verði lögð á virka svæðisvernd í hafi. Svæði sem hafa mikið verndargildi, svæði með vistfræðilega sérstöðu og svæði sem eru í hættu á að vera raskað verða afmörkuð. Hópurinn mun einnig gera tillögur að nýjum verndarsvæðum.

Nýverið var tilkynnt um að Svandís hefði undirritað nýja reglugerð um verndun hafsvæða gegn botnveiðum í íslenskri efnahagslögsögu og voru þar tilgreind þrjú ný svæði þar sem botnveiðar hafa ekki verið bannaðar áður.

Starfshópnum er gert að rýna í stöðu mála með tilliti til markmiða alþjóðlegra samninga um að 30% heimshafanna verði innan verndarsvæða eða njóti annarrar virkrar svæðisbundinnar verndar og verði stefnt að verndun innan efnahagslögsögu Íslands verði í samræmi við fyrrgreind markmið. Þá er lögð áhersla á að markmið verndunar séu skýr, að árangur sé tryggður með vöktun og eftirliti, unnið verði á vísindalegum grunni og í samráði við haghafa.

„Verndun hafsvæða er mikilvæg til að viðhalda og efla líffræðilega fjölbreytni í hafi og á hafsbotni. Hnignun hafsvæða og loftslagsbreytingar hafa aukið álag á vistkerfi og er formleg verndun því liður í að viðhalda seiglu vistkerfa gegn slíkum umhverfisbreytingum,“ segir í tilkynningunni.

Gert er ráð fyrir að stýrihópurinn skili fyrstu tillögum til ráðherra fyrir 1. desember 2023.

Í starfshópnum eru:

  • Björn Helgi Barkarson (formaður), skrifstofustjóri sjálfbærni í matvælaráðuneytinu.
  • Agnar Bragi Bragason, sérfræðingur, matvælaráðuneytinu.
  • Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, sviðsstjóri, Hafrannsóknastofnun.
  • Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
  • Snorri Sigurðsson, sviðsstjóri, Náttúrufræðistofnun Íslands.
  • Þórdís Björt Sigþórsdóttir, teymisstjóri, Umhverfisstofnun.
  • Starfsmaður stýrihópsins verður Freydís Vigfúsdóttir, sérfræðingur í matvælaráðuneytinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 538,06 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 345,05 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 176,66 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 291,37 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Þorskur 137 kg
Steinbítur 76 kg
Skarkoli 64 kg
Samtals 277 kg
23.7.24 Glær KÓ 9 Handfæri
Þorskur 1.147 kg
Samtals 1.147 kg
23.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 513 kg
Ufsi 87 kg
Samtals 600 kg
23.7.24 Ísey ÞH 375 Handfæri
Þorskur 765 kg
Samtals 765 kg
23.7.24 Bobby 8 ÍS 368 Sjóstöng
Þorskur 104 kg
Steinbítur 18 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 125 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 538,06 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 345,05 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 176,66 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 291,37 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Þorskur 137 kg
Steinbítur 76 kg
Skarkoli 64 kg
Samtals 277 kg
23.7.24 Glær KÓ 9 Handfæri
Þorskur 1.147 kg
Samtals 1.147 kg
23.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 513 kg
Ufsi 87 kg
Samtals 600 kg
23.7.24 Ísey ÞH 375 Handfæri
Þorskur 765 kg
Samtals 765 kg
23.7.24 Bobby 8 ÍS 368 Sjóstöng
Þorskur 104 kg
Steinbítur 18 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 125 kg

Skoða allar landanir »