Eimskip Greenland A/S, dótturfélag Eimskips, hefur fest kaup á umboðs- og flutningsmiðlunarstarfsemi Royal Arctic Line (Royal Arctic Spedition) á Grænlandi og taka kaupin gildi frá og með 1. maí 2023, að uppfylltum fyrirvörum í kaupsamningi.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Eimskips.
Þar segir að „reksturinn sem Eimskip kaupir samanstendur af flutningsmiðlun og umboðsþjónustu skip sem hafa viðkomu á Grænlandi svo sem skemmtiferðaskip, togara og fleira. Eimskip hefur byggt upp öfluga umboðsþjónustu á Íslandi og í Færeyjum og tekur nú skref inná grænlenska markaðinn þar sem umferð skemmtiferðaskipa hefur aukist síðustu ár.“
Frá árinu 2020 hefur Eimskip starfrækt flutningsmiðlun í Nuuk á Grænlandi. Kaupin eru sögð styrkja stöðu Eimskips á heimamarkaði sínum í Norður Atlantshafi enn frekar og auka þjónustuframboð félagsins á Grænlandi.
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips
mbl.is/Kristinn Magnússon
„Kaupin á þessum rekstri eru mikilvægur áfangi fyrir Eimskip á Grænlandi og rökrétt skref í þjónustu Eimskips á norðurslóðum. Grænland er spennandi og vaxandi markaðssvæði sem við höfum trú á til framtíðar. Við erum þess fullviss að þessi kaup muni skapa ný vaxtatækifæri fyrir Eimskip og stuðla að þróun á öflugri og fjölbreyttri starfsemi félagsins á svæðinu,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, í tilkynningunni.
Uppfært kl 08:38: Hér sagði í fyrirsögn að Eimskip hefði fest kaup á Royal Arctic Line. Fyrir mistök vantaði inn „umboðsstarfsemi“. Fyrirsögnin hefur verið leiðrétt með tilliti til þessa og er beðist verlvirðingar á þessum mistökum.