„Við vitum af hverju við lifum“

Pólitísk óvissa sjávarútvegsins er einnig óvissa fyrir sjávarpláss landsins, að …
Pólitísk óvissa sjávarútvegsins er einnig óvissa fyrir sjávarpláss landsins, að sögn Írisar Róbertsdóttur Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðrikss

Fjölmörg samfélög við strandlengju landsins eru háð sjávarútveginum og eru Vestmannaeyjar eðli málsins samkvæmt engin undantekning frá því. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, segir í síðasta blaði 200 mílna Eyjamenn vita af hverju þeir lifa og kveðst hafa áhyggjur af því hve óvægin umræðan er orðin um sjávarútveginn.

„Sjávarútvegur hefur verið aðalstoðin í atvinnulífi Vestmannaeyja nánast frá upphafi byggðar og er enn. Sjávarútvegur er forsenda fyrir lífsgæðum Vestmanneyinga,“ segir Íris.

Þá sé vandamál hvernig umræðumenningin hefur þróast í öllu sem snýr að greininni. „Það er aldrei tekin fagleg umræða um sjávarútveg og kosti og galla í kerfinu, heldur er fólk oft fast í upphrópunum. Ég hugsa að það gæti verið vegna þess að margir átta sig kannski ekki á mikilvægi greinarinnar. Ef fólk vissi raunverulega hvað sjávarútvegurinn er að gera fyrir Ísland og samfélögin hringinn í kringum landið væri umræðan á allt öðrum stað.“

Íris segir höfnina líæð Vestmannaeyja.
Íris segir höfnina líæð Vestmannaeyja. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það þarf að tala mun meira um allt það sem vel er gert. Umræðan um neikvæða þætti blómstrar en allt sem snýr að mikilvægi greinarinnar fyrir samfélag eins og okkar eða þjóðarbúið kemst ekki að. Það er gríðarlega mikið af misvísandi upplýsingum í umferð um hvað sjávarútvegurinn gefur, hvað hann skilur eftir og hvaða áhrif hann hefur. Í umræðum við Austurvöll gleymist hvernig greinin hefur borið efnahagskerfið í gegnum meðal annars bankahrunið,“ segir Íris.

Ljóst er að mati bæjarstjórans að til er fjöldi áskorana, svo sem þak á hlutdeild sem er bundið við þorskígildi, sem gerir það að verkum að sveiflur í ráðgjöf fyrir einstakar tegundir frá ári til árs geta haft ófyrirséðar afleiðingar fyrir fyrirtæki sem telja sig vera innan ramma laganna. Bendir hún á að sveifla í loðnuráðgjöf milli ára getur leitt til þess að útgerð þurfi að selja frá sér heimildir, þrátt fyrir að loðnuráðgjöfin gæti orðið engin árið á eftir.

Einnig sé ljóst að auðlindagjald leggist með ósanngjörnum hætti á þessa atvinnugrein þegar aðrar atvinnugreinar sleppa alfarið við slíkt gjald. „Ef það á að innheimta slík gjöld þarf sú gjaldtaka að ná til allrar nýtingar auðlinda, ekki bara sjávarútvegs.“

Lesa má viðtalið í heild sinni í blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.7.24 398,89 kr/kg
Þorskur, slægður 17.7.24 352,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.7.24 352,11 kr/kg
Ýsa, slægð 17.7.24 154,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.7.24 161,27 kr/kg
Ufsi, slægður 17.7.24 214,63 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 17.7.24 262,52 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Grímsey ST 2 Dragnót
Ýsa 5.054 kg
Þorskur 3.492 kg
Skarkoli 1.236 kg
Skrápflúra 192 kg
Steinbítur 27 kg
Þykkvalúra 18 kg
Samtals 10.019 kg
17.7.24 Þura AK 79 Handfæri
Þorskur 129 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 139 kg
17.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 251 kg
Karfi 27 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 303 kg
17.7.24 Hafrún HU 12 Dragnót
Ýsa 7.175 kg
Þorskur 1.190 kg
Steinbítur 291 kg
Skarkoli 55 kg
Langlúra 36 kg
Sandkoli 12 kg
Samtals 8.759 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.7.24 398,89 kr/kg
Þorskur, slægður 17.7.24 352,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.7.24 352,11 kr/kg
Ýsa, slægð 17.7.24 154,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.7.24 161,27 kr/kg
Ufsi, slægður 17.7.24 214,63 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 17.7.24 262,52 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Grímsey ST 2 Dragnót
Ýsa 5.054 kg
Þorskur 3.492 kg
Skarkoli 1.236 kg
Skrápflúra 192 kg
Steinbítur 27 kg
Þykkvalúra 18 kg
Samtals 10.019 kg
17.7.24 Þura AK 79 Handfæri
Þorskur 129 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 139 kg
17.7.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 251 kg
Karfi 27 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 303 kg
17.7.24 Hafrún HU 12 Dragnót
Ýsa 7.175 kg
Þorskur 1.190 kg
Steinbítur 291 kg
Skarkoli 55 kg
Langlúra 36 kg
Sandkoli 12 kg
Samtals 8.759 kg

Skoða allar landanir »