Norska flutningaskipið Wilson Skaw, sem hefur setið fast í Húnaflóa síðan á þriðjudag, losnaði á tíunda tímanum í morgun. Aukinn öldugangur á flóanum olli því að skipið sé komið á flot.
„Varðskipið Freyja kom dráttartaug yfir í flutningaskipið Wilson Skaw í morgun,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgigæslunnar, í samtali við mbl.is.
„Það var gert í kjölfar þess að vindur og ölduhæð fór vaxandi.“
Hann segir að snemma í morgun hafi dráttartauginni verið komið fyrir á milli skipanna og á tíunda tímanum í morgun var komið los á skipið vegna öldugangs.
Nú verið að gera tilraun til að koma Wilson á dýpra hafsvæði. Hann segir að varðskipið Freyja fikri sig nú hægt áfram með flutningaskipið en það eru nokkur blindsker á svæðinu, því sé mikilvægt að farið sé með ýtrustu gát.
Áhöfn björgunarskips Slysavarnarfélagsins Landsbjargar er einnig á vettvangi.
Frá því hefur verið greint að erlenda björgunarfélagið SMIT Salvage hefur unnið að björgunaráætlun. Þessar aðgerðir eru þó ekki á þeirra vegum, þar sem Landhelgisgæslan taldi það nauðsynlegt að gripið yrði inn í.
„Þegar Landhelgisgæslan metur það sem svo að grípa þurfi inn í ákveðnar aðstæður þá gerir hún það,“ segir Ásgeir og bætir við að í morgun var talin þörf á því. Hann segir að þetta sé allt gert í góðri samvinnu við útgerð skipsins.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.7.24 | 399,16 kr/kg |
Þorskur, slægður | 16.7.24 | 406,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 16.7.24 | 367,05 kr/kg |
Ýsa, slægð | 16.7.24 | 309,23 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 16.7.24 | 151,84 kr/kg |
Ufsi, slægður | 16.7.24 | 164,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 16.7.24 | 349,26 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.708 kg |
Samtals | 2.708 kg |
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 430 kg |
Ufsi | 21 kg |
Samtals | 451 kg |
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 752 kg |
Karfi | 20 kg |
Samtals | 772 kg |
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 770 kg |
Samtals | 770 kg |
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 685 kg |
Karfi | 36 kg |
Ufsi | 19 kg |
Ýsa | 16 kg |
Samtals | 756 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.7.24 | 399,16 kr/kg |
Þorskur, slægður | 16.7.24 | 406,84 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 16.7.24 | 367,05 kr/kg |
Ýsa, slægð | 16.7.24 | 309,23 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 16.7.24 | 151,84 kr/kg |
Ufsi, slægður | 16.7.24 | 164,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 16.7.24 | 349,26 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.708 kg |
Samtals | 2.708 kg |
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 430 kg |
Ufsi | 21 kg |
Samtals | 451 kg |
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 752 kg |
Karfi | 20 kg |
Samtals | 772 kg |
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 770 kg |
Samtals | 770 kg |
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 685 kg |
Karfi | 36 kg |
Ufsi | 19 kg |
Ýsa | 16 kg |
Samtals | 756 kg |