Wilson dreginn til Akureyrar

Siglingin til Akureyrar gæti tekið um sólarhring.
Siglingin til Akureyrar gæti tekið um sólarhring. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Áætlað er að draga norska flutningaskipið Wilson Skaw til hafnar á Akureyri í dag og að það verði því komið í höfn á morgun, en skipið hefur setið fast í Húnaflóa síðan á þriðjudag. Verið er að dæla olíu úr flutningaskipinu yfir í varðskipið Freyju.

„Dælingin hófst í gærkvöldi og nú er búið að dæla um 60 rúmmetrum af þeim 190 sem þurfa að fara frá borði og við gerum þá ráð fyrir því að dælingunni ljúki seinni partinn í dag,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.

Varðskipið Freyja á vettvangi í gær.
Varðskipið Freyja á vettvangi í gær. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Slöngu var komið fyrir á milli skipanna á Steingrímsfirði í gær.

„Við viljum hafa sem minnsta olíu um borð í skipinu ef eitthvað skyldi koma upp á,“ segir Ásgeir.

Slöngu var komið fyrir á milli skipanna á Steingrímsfirði í …
Slöngu var komið fyrir á milli skipanna á Steingrímsfirði í gær. Ljósmynd/Guðmundur St. Valdimarsson

Skemmdir metnar frekar

Síðar í dag fer fram köfun í skipið þar sem botninn verður skoðaður og skemmdir metnar frekar. Þá er verið að sjóða fyrir tvö göt á flutningaskipinu, það er á lest skipsins og í vélarrúminu.

„Þegar þessu er lokið gerum við ráð fyrir því að leggja af stað með skipið til hafnar á Akureyri, seinna í dag eða undir kvöld. Sú sigling gæti tekið um sólarhring en fer auðvitað eftir veðri og sjólagi.“

Verið er að dæla olíu úr flutningaskipinu yfir í varðskipið …
Verið er að dæla olíu úr flutningaskipinu yfir í varðskipið Freyju. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Ásgeir segir aðstæður hafa verið góðar á Steingrímsfirði og að öll vinna á vettvangi hafi gengið vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.1.25 594,51 kr/kg
Þorskur, slægður 21.1.25 681,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.1.25 408,59 kr/kg
Ýsa, slægð 21.1.25 301,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.1.25 245,35 kr/kg
Ufsi, slægður 21.1.25 302,81 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 21.1.25 328,80 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.1.25 Sæfari HU 212 Landbeitt lína
Þorskur 1.830 kg
Ýsa 900 kg
Hlýri 43 kg
Steinbítur 38 kg
Samtals 2.811 kg
22.1.25 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Ýsa 3.466 kg
Þorskur 2.322 kg
Keila 13 kg
Ufsi 8 kg
Karfi 8 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 5.821 kg
22.1.25 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 16.770 kg
Ufsi 3.238 kg
Samtals 20.008 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.1.25 594,51 kr/kg
Þorskur, slægður 21.1.25 681,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.1.25 408,59 kr/kg
Ýsa, slægð 21.1.25 301,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.1.25 245,35 kr/kg
Ufsi, slægður 21.1.25 302,81 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 21.1.25 328,80 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.1.25 Sæfari HU 212 Landbeitt lína
Þorskur 1.830 kg
Ýsa 900 kg
Hlýri 43 kg
Steinbítur 38 kg
Samtals 2.811 kg
22.1.25 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Ýsa 3.466 kg
Þorskur 2.322 kg
Keila 13 kg
Ufsi 8 kg
Karfi 8 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 5.821 kg
22.1.25 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 16.770 kg
Ufsi 3.238 kg
Samtals 20.008 kg

Skoða allar landanir »