Loðnuhrognabjórinn sló í gegn

Icelandic Asia bauð loðnuhrognabjór á sýningunni í Barselóna annað árið …
Icelandic Asia bauð loðnuhrognabjór á sýningunni í Barselóna annað árið í röð, en að þessu sinni bragðbætt með japanskri shiso jurt. mbl.is/Gunnlaugur

Loðnuhrognabjór sölufélagsins Icelandic Asia hefur notið mikilla vinsælda á alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni Seafood Expo Global í Barselóna á Spáni. Hann er bruggaður með loðnuhrognum eins og gert var í fyrsta sinn í aðdraganda sýningarinnar í fyrra, en að þessu sinni er hann einnig bragðbættur með shiso sem er japönsk kryddjurt í stað íslensks blóðbergs.

Bjórnum var fyrst teflt fram á opnunardegi sýningarinnar í gær og er á bakhlið dósanna QR merki sem hægt er að skanna og athuga hvort maður hafi hlotið vinning, en þeir sem ekki hlutu slíkan vinning fengu í stað þess fróðleiksmola um íslenskan sjávarútveg.

Myndskreytingin er út af fyrir sig umræðuefni en um er að ræða listaverk skapað af gervigreindar.

„Hann sló í gegn í fyrra og við ákváðum því að gera nýja útgáfu af honum fyrir þessa sýningu og hann hefur bara slegið í gegn líka,“ segir Agnes Guðmundsdóttir, sölustjóri Icelandic Asia.

Listaverk gervigreindarinnar er gullfallegt.
Listaverk gervigreindarinnar er gullfallegt. mbl.is/Gunnlaugur

Blaðamaður gat ekki látið þennan einstaka bjór framhjá sér fara og nýtti tækifærið til að smakka. Bjórinn er lager af bestu gerð með milt humlabragð auk örlítilli seltu og jurtakeim. Bæði er hann svalandi og með flókna bragðsamsetningu sem samt einhvernvegin virkar vel.

Bjórinn er sérbruggaður fyrir Icelandic Asia vegna sýningarinnar og því hvergi til sölu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 474,47 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 365,15 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,16 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 1.241 kg
Keila 166 kg
Þorskur 115 kg
Skarkoli 8 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.540 kg
22.7.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Keila 575 kg
Karfi 477 kg
Þorskur 302 kg
Hlýri 140 kg
Ufsi 4 kg
Grálúða 3 kg
Samtals 1.501 kg
22.7.24 Djúpey BA 151 Grásleppunet
Grásleppa 745 kg
Samtals 745 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 474,47 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 365,15 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,16 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 1.241 kg
Keila 166 kg
Þorskur 115 kg
Skarkoli 8 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.540 kg
22.7.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Keila 575 kg
Karfi 477 kg
Þorskur 302 kg
Hlýri 140 kg
Ufsi 4 kg
Grálúða 3 kg
Samtals 1.501 kg
22.7.24 Djúpey BA 151 Grásleppunet
Grásleppa 745 kg
Samtals 745 kg

Skoða allar landanir »