Hvalveiðar samræmast ekki markmiðum um dýravelferð

Ekki er öruggt að hvalveiðar geti uppfyllt markmið laga um …
Ekki er öruggt að hvalveiðar geti uppfyllt markmið laga um velferð dýra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Matvælastofnun (MAST) telur aflífun á hluta stórhvela við Íslandsstrendur á vertíðinni í fyrra hafi tekið of langan tíma og þannig ekki samræmst meginmarkmiðum laga um velferð dýra.

Stofnunin telur hins vegar að við veiðarnar hafi verið beitt bestu þekktu aðferðum miðað við þær aðstæður sem þessar veiðar eru stundaðar við og því hafi ákvæði um veiðar í lögum um velferð dýra ekki verið brotin, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stofnunarinnar.

Stofnunin hefur tekið saman skýrslu vegna eftirlits við veiðar á langreyðum við Ísland á síðasta ári, en alls veiddust 148 hvalir á veiðitímabilinu.

Hvalirnir voru allir skoðaðir af eftirlitsdýralækni MAST í landi. Þá var viðhaft eftirlit með veiðum á 58 hvölum um borð í hvalveiðibátunum af hálfu starfsmanna Fiskistofu í umboði MAST.

„Af þeim 148 hvölum sem voru veiddir, voru 36 hvalir (24%) skotnir oftar en einu sinni. Þar af voru fimm hvalir skotnir þrisvar og fjórir hvalir skotnir fjórum sinnum. Einum hval með skutul í bakinu var veitt eftirför í 5 klst. án árangurs,“ segir í tilkynningunni.

Þá telur MAST ástæðu til að meta hvort veiðar á stórhvelum geti yfir höfuð uppfyllt markmið laga um velferð dýra. „Ef slíkt er talið mögulegt, þurfa stjórnvöld að setja reglugerð um framkvæmd veiðanna og lágmarkskröfur við þær.“

24% skotnir oftar en einu sinni

Í skýrslunni kemur fram að í eftirliti með veiðum 58 hvala hafi komið í ljós að „35 (59%) hvalir drápust samstundis samkvæmt skilgreiningu Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) um hvenær hvalur telst dauður við hvalveiðar. Til viðbótar er talið líklegt að fimm hvalir sem sýndu krampa hafi misst meðvitund samstundis eða mjög hratt, og því talið að 67% hvalanna hafi drepist eða misst meðvitund fljótt eða samstundis“.

Þá voru 14 hvalir (24%) skotnir oftar en einu sinni, en tvo hvali þurfti að skjóta fjórum sinnum, tæpa klukkustund tók að aflífa annan hvalinn og hinn tvær klukkustundir.

Matvælastofnun telur jafnframt þörf á áframhaldandi eftirliti á komandi vertíð. „Vert er að taka fram að skv. gildandi veiðileyfi og lögum um velferð dýra er ábyrgð á að aflífun dýranna sé með ásættanlegum hætti ávallt á höndum framkvæmdaraðila,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg
22.7.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Skarkoli 1.132 kg
Þorskur 769 kg
Steinbítur 685 kg
Ýsa 240 kg
Sandkoli 230 kg
Samtals 3.056 kg
22.7.24 Gaffallinn EA 0 Sjóstöng
Þorskur 8.086 kg
Ýsa 50 kg
Ufsi 11 kg
Steinbítur 2 kg
Sandkoli 1 kg
Samtals 8.150 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg
22.7.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Skarkoli 1.132 kg
Þorskur 769 kg
Steinbítur 685 kg
Ýsa 240 kg
Sandkoli 230 kg
Samtals 3.056 kg
22.7.24 Gaffallinn EA 0 Sjóstöng
Þorskur 8.086 kg
Ýsa 50 kg
Ufsi 11 kg
Steinbítur 2 kg
Sandkoli 1 kg
Samtals 8.150 kg

Skoða allar landanir »